Húsfreyjan - 01.07.1961, Blaðsíða 18
En samhliða þessu kom fram sú hug-
mynd að sameina kvenfélög og hin dreifðu
kvenfélagasambönd landsins til átaka um
húsmæðrafræðsluna og önnur mál heim-
ilanna. Og þessari hugmynd var komið í
framkvæmd með fundi allmargra kvenna
úr kvenfélögum og kvenfélagasambönd-
um, þar sem ákveðið yar að stofna Kven-
félagasamband Islands. Var þetta snemma
á Alþingishátíðarárinu 1930.
Við vitum, að margir áttu þátt að stofn-
un Kvenfélagasambands íslands, og sé
þeim öllum þökk, en ég held að ekki verði
um það deilt, að þar verði frú Ragnhildar
Pétursdóttur ætíð fyrstrar getið, enda
var hún kosin fyrsti formaður sambands-
ins og gegndi hún því starfi til ársins
1947, er hún baðst undan endurkosningu.
Hún vann sambandinu mikið starf og
gott, og hafði ætíð áhuga fyrir velferð
þess, sem og fyrir baráttumálum kvenna
yfirleitt. Frú Ragnhildur var meðal okkar
hér í síðasta sinn, er við fyrir ári síðan
minntumst 30 ára afmælis K. f. við setn-
ingu formannafundarins.
Ég veit, að margar af yður, virðulegu
áheyrendur, þekktuð frú Ragnhildi Pét-
ursdóttur og heimili hennar betur en ég
gerði, og að í eyrum yðar hljóma orð mín
fátæklega, en ég vil fyrst og fremst hér
undirstrika þá þakkarskuld, sem félags-
skapur vor er í við frú Ragnhildi Péturs-
dóttur vegna undirbjúningsstarfs henn-
ar að stofnun K. I. og brautryðjendastarfs
hennar og forystu við stofnun sambands-
ins og fyrstu árin. Hennar mun verða
minnst á meðan samband vort og félags-
skapur vor lifir.
Ég vil biðja yður að votta minningu
hinnar látnu forystukonu samtaka vorra
virðingu yðar með því að rísa úr sætum.
----------- Framhald á bls. 31.
18
Ii ú s j r ey j an