Húsfreyjan - 01.07.1961, Page 28

Húsfreyjan - 01.07.1961, Page 28
HEIMILISÞÁTTUR Nýr flibbi q slitinni skyrtu Margar húsmæður munu þurfa að taka til höndum við þjónustubrögð, þegar haustar að, og sumarfríi — eða sumarönnum lýkur. Hér fara á eftir leiðbeiningar um viðgerð á slitnum flibba, sem ekki er hægt að snúa við, vegna þess að aukasaumar eða vasar, ætlaðir fyrir spennur, sem eiga að gera flibbann stíf- ari, eru á röngunni. 1. mynd. Slitna fiibba má gera sem riýja, ef farið er að, eins og sýnt er á þessum myndum. Ef ekki er til afgangur af efninu, verður að taka efni til viðgerðarinnar neðan af skyrtunni, t. d. af bakinu. 2. mynd: Sléttið vel úr flibbanum, leggið þunn- an pappír yfir, og teiknið útlínur flibbans með blýanti. Sníðið síðan eftir þessu sniði nýtt borð á flibbann, en hafið 2 sm saumfar (auka má saman í miðju, ef þess gerist þörf). 3. mynd. Leggið nýja borðið við, þannig, að rangan snúi að slitnu hliðinni á flibbanum, nælið það fast með títuprjónum. 4. mynd. Klippið þvert fyrir á báðum horn- um, klippið síðan lítið vik inn, þar sem flibbinn og hálslíningin mætast, en gætið þess að klippa ekki alveg inn að flibbabrúninni. 5. mynd. Beygið saumfarið inn á rönguna meðfram brúnum flibbans, og tyllið eða leggið niður við í höndunum. Brjótið flibbann, eins og sýnt er á myndinni og festið með títuprjónum við hálslíninguna. Hafið flibbann brotinn og boginn á meðan gengið er frá þessu, svo að yfirborðið verði jafnt og slétt. 6. mynd. Saumið eina stungu um % sm frá brún á réttu flibbans, og haldið síðan áfram með stunguna meðfram brúninni við hálsinn, þar sem nælt er með títuprjónum. Það getur verið betra að þræða, áður en þessi stunga er saum- uð, svo að ekki sé hætta á, að yfirborðið skríði til og hrukkist. 28 Húsfreyjan

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.