Húsfreyjan - 01.07.1961, Qupperneq 32

Húsfreyjan - 01.07.1961, Qupperneq 32
heildarsamtökin eigi eftir að vaxa með verkefnunum. Um leið og við ræðum síaukin og vandasöm viðfangsefni fyrir fjölda kvenna innan samtaka vorra, langar mig að minnast þess, að nú á þessu ári eru liðin 50 ár frá því að sett voru hér á landi lög um rétt kvenna til embættisnáms, náms- styrkja og embætta. Lög þessi eru nr. 37, 'frá 11. júlí 1911. Að mínum dómi voru þessi lög að sínu leyti eins þýðingarmikil eins og stjórnar- skrárbreytingin um kosningarétt og kjör- gengi kvenna, sem kom síðar, og miklu merkari en svo, að 50' ára árstíð þeirra megi gleymast, þegar heildar-kvennasam- tök landsins halda landsþing sitt. Vér hljótum að tengja áhrif þessara laga við starf vort, félagslega og menn- ingarlega, og margar konur hafa sem ein- staklingar haft af þeim gagn og þroska. Um leið og raunverulegum þingstörf- um verður lokið hér, en fyrir þingslit, á þetta landsþing von á góðum gestum. Hér verður haldinn stjórnarfundur Húsmæðrasambands Norðurlanda í fyrsta sinn eftir að Kvenfélagasamband fslands gerðist þátttakandi í þeim samtökum. Það er okkur gleðiefni, að úr því gat orðið að þessi stjórnarfundur yrði hald- inn hér nú, og við fögnum því mjög, að forystukonur Húsmæðrasambands Norð- urlanda geta komið hingað í heim- sókn, þrátt fyrir það, að við neyddumst til þess að breyta fundartímanum. Við vonum, að þessar ágætu konur megi eiga hér ánægjulega daga, og ég held, að við væntum okkur nokkurs þroska af því, að konur víðsvegar að af landinu fá tæki- færi til þess að kynnast persónulega stjórnarkonum í Húsmæðrasambandi Norðurlanda. Mig langar fyrir hönd okkar, sem sitj- um í stjórn og varastjórn Kvenfélaga- sambands fslands, að þakka fulltrúum fyrir það, að þær koma til þings svo fjöl- mennar. Af ástæðum, sem öllum eru kunnar, var þinginu frestað um tvo mán- uði. Um þá ráðstöfun má deila, svo sem öll mannanna verk, en ég fullvissa yður um, að ákvörðunin um frestun var tekin að vandlega athuguðu máli og eftir beztu samvizku. Vonum við, að samverustund- irnar megi að einhverju leyti bæta upp þau óþægindi, sem sköpuðust af óvissunni um þinghaldið. Ég vil engu spá um störf þessa þings, sem nú er að hefjast, en ef við leitumst. við að vinna með samvizkusemi og trú- mennsku þau störf, sem fyrir liggja, þá mun áfram miða, og einu má samband vort aldrei gleyma: Það er verkefni þess að styðja að því, að heimili landsins verði sterk og mikils virtar stofnanir í landinu. Það verkefni mega félagasamtök vor aldrei vanrækja. Ég segi 14. landsþing Kvenfélagasam- bands íslands sett og bið Guð að blessa störf þess. Húsfreyjan kemur út 4 sinnum á ári. Ritstjórn: Svafa Þórleifsdóttir Laugavegi 33A - Sími 16G85 Sigríður Thorlacius Bólstaðahlíð 16 - Sími 13783 Elsa E. Guðjónsson Laugateigi 31 - Sími 33223 Sigríður Kristjánsdóttir Stigahlíð 2 - Sími 35748 Kristjana Steingrímsdóttir Hringbraut 89 - Sími 12771 Afgreiðslu og innheimtu annast Svafa Þórleifsdóttir, Laugavegi 33A. Verð árgangsins er 35 krónur. í lausasölu kostar hvert venjulegt hefti 10 kr. Gjald- dagi er fyrir 1. október ár hvert. Prentsmiðja Jóns Helgasonar. 32 Húsfreyjan

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.