Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 4

Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 4
frá liðna tímanum og það er við nú þekkjum. Hinn mikli andans jöfur séra Matthías Jochumsson horfir eitt einn um öxl til bernskuáranna í baðstofunni lágu í Skóg- um í Þorskafirði. „Ég man eitt kvöldið við þitt móður kné um myrkt og þegjandi rökkurhlé — þú kunnir sögur að segja: — Ég horfði yfir björg og hvítan sand, ég horfði’ yf’ir á Zion og Kanansland, ég horfði á Guðs hetjuna deyja. Þá lærði ég allt, sem enn ég kann, um upphaf og endi, um Guð og mann og lífsins og dauðans djúpin. Mitt andans skrúð var skorið af þér, sú skyrtan bezt hefur dugað mér við stormana, hélið og hjúpinn". Hún er heillandi fögur myndin, sem dregin er upp í þessum ljóðlínum. Á kvöld- in þyrpast börnin að knjám móðurinnar. Hún segir þeim sögur og fræðir þau. Á hraðfleygum vængjum huganna tekur hún þau með sér til fjarlægra landa, og löngu liðnir atburðir verða lifandi fyrir hugar- sjónum barnanna. Bljúgur barnshugurinn mótast og hlýtur það veganesti sem öllu heimsins gulli er betra. Jafnvel hversdagsfyrirbærin notar móðirin til að ljúka upp leyndardómum ,Þú bentir mér á, hvar árdagssól í austrinu kom með líf og skjól, þá signdir þú mig og segir: „Það er Guð, sem horfir svo hýrt og bjart, það er hann sem andar á myrkrið svart og heilaga ásjón hneigir". Og hver fær efast um það, sem hún mamma segir. „Ég fann það var satt; ég fann þann yl, sem fjörutíu ára tímabil til fulls mér aldregi eyddi; ég fann þann neista’ í sinni’ og sál, er sorg og efi, stríð og tál mér aldregi alveg deyddi“. Þetta eru Íjúfar og fagrar minningar, og sjálfsagt hafa margir átt slíkar. 1 hin- um lágreistu baðstofum var fólkið sam- an komið á kvöldin, og enda þótt vinna þyrfti einnig þær stundir, til þess að sjá heimilinu farborða, voru þær annað og meira en stundir strits. Við flöktandi ljósið frá litlu týrunni var lesið upp og sögur sagðar. Margur fróðleiksmolinn barzt frá einum til annars, og því mátti segja, að stofan lága væri orðin að skóla og rúmbálkarnir að skólabekkjum. Á kvöldvökunum var sitthvað haft til skemmtunar. Flestir tóku þátt í gamn- inu og nutu þess betur sem þátttakendur, en áheyrendur og áhorfendur hefðu gjört. Margt gat veitt kátínu og margt færði ánægju og unað. Baðstofan lága varð að gleðihöll. Þessar litlu og lágreistu baðstofur gegndu fleiri hlutverkum. Á stundum voru þau veglegt guðshús. Þá var rokk- hjólið þögult og kambarnir kyrrir. Heim- ilisfaðirinn var heimilispresturinn, heima- fólkið allt söfnuðurinn. Lesturinn var les- inn, sálmar sungnir og bænir sendar í hæðir upp til Guðs, gjafara allra gæða, hins vakanda föður vanmáttugra, sem börðust við kulda, kúgun og kröpp kjör. Þótt börnin skildu eigi allt það, er fram var flutt, þá urðu þau snortin af helgi slíkra stunda. Þannig mótuðust barnssálirnar á heim- ilunum. Börnin lærðu að una við lítið og vera hamingjusöm, lærðu að gleðjast yf- ir litlu og bera lotningu fyrir því, sem heil- agt er og háleitt. Þeir voru ótal margir, sem þar fundu neistann í sinni og sál, er sorg og efi, stríð og tál aldregi alvég deyddi. Þær eru einnig ótaldar mæðurn- ar, sem áttu skilið álíka fagran minnis- varða og móðir séra Matthíasar. Heimilin voru hornsteinar sem allt vallt á. Þar var sáð í mannlífsakur uppvaxandi kynslóð- ar, og heill og hamingja einstaklinganna og þjóðarinnar undir því komin að sú sáning blessaðist. En nú hafa átt sér stað miklar breyt- ingar. Hin hraðfleyga tækniþróun hefur 4 Húsfreyjan

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.