Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 26
Þar eð Húsfreyjunni hefur borizt ósk
um að birta uppdrætti af tvíbanda
vettlingum, eru að þessu sinni tveir
slíkir uppdrættir í sjónabókinni.
Talsvert er til af íslenzkum vettling-
um frá 19. öld í Þjóðminjasafni Is-
lands. Flestir eru þeir belgvettlingar,
margir svartir með marglitaðri, fléttu-
saumaðri rós á handarbaki, þ. e. rósa-
vettlingar. Nokkrir rósaðir fingravettl-
ingar hafa einnig varðveitzt, m. a. þeir,
sem hér birtist mynd af (Þjms.
5029). Eru þeir hvítir með aðallega
rauðum, en einnig svolitlum fjólublá-
um ísaumi.
Fyrri uppdrátturinn er gerður eftir
þeim, handarbakið eftir rósinni á
handarbaki þeirra, en lófamunstrið
eftir hlekkjastrengjunum á fingrun-
um.
Seinni uppdrátturinn er að mestu
gerður eftir munstri á riðsprangslist-
um á altarisklæðinu frá Vallanesi
(Þjms. 7122), sem sagt var frá í
sjónabókinni í síðasta hefti. Lófa-
munstrið á þessum uppdrætti er þó
nýsmíð. E. E. G.
26