Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 39

Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 39
BARNAGAMAN Siggi fer í skóla Siggi átti að fara í skóla. Hann var orðinn sex ára gamall og gat siglt á trogi og rennt sér á sleða ofan bratta brekku og margt fleira. Hann þekkti ljón og tígra, eftir myndunum í myndabókinni sinni, sömuleiðis fíla og nashyrninga. Og enginn þekkti betur Brún og Snata og kattarmjáið og gaggala-gú. En bókstaf- ina þekkti hann ekki, það var satt; hann þekkti þá alls ekki. Það sýndust honum vera fremur undarleg stryk, sum bogin og önnur bein, en öll voru þau svört eins og flugur. Sigga fannst það mundi ekki svara kostnaði að læra að þekkja stafina. Um víkinga og riddara hafði hann heyrt þess getið, að þeir hafi látið kalla á prestinn, þegar eitthvað þurfti að lesa eða skrifa. ,,Og þegar ég verð stór“, sagði Siggi, bogsveigóttum greinum. Blóm hvít í þéttstæðum sveipum. Afar öruggur með blómgum og ein harðgerðasta kvisttegundum sem hér er í görðum (S veitchii). Snækóróna: Lágvaxin runni (1—1,2 m) með smá, græn bjöð og nokkuð stór hvít, ilmsæt blóm. Afar viljugur að blómgast og vel harðgerður í sæmi- lega skjólgóðum garði. Óli Valur Hansson. ,,þá ætla ég að taka sverðið mitt og verða víkingur, höggva menn og senda eftir prestinum". „Heldurðu þá, að presturinn komi?“ spurði móðir hans. „Þá sendi ég eftir skólastrákunum. Þeir eiga að lesa fyrir mig“, sagði Siggi. „Þeir skopast að þér“, sagði faðir hans, „og kalla þig þorsk; það gera þeir“. „Þeir ættu nú að reyna það“, sagði Siggi. „Þegar þú verður stór“, sagði faðir hans, „og allir drengirnir hinir og stúlk- urnar standa á kirkjugólfinu og eru spurð út úr, þá verður þú að ráfa úti í kirkju- garði eins og hafur á beit“. „En ég vil ekki lesa; ég vil hlaupa og leika mér allan daginn!“ kallaði Siggi. „Vilt þú —?“ sagði faðir hans. „Veiztu, hvar þinn vilji er? Hann liggur í ösku- stónni. Á morgun ferðu í skólann". Þegar Siggi fór í rúmið um kvöldið, hugsaði hann með sjálfum sér: „Nú sofna ég ekki í nótt. Þegar kyrrt er orðið, þá fer ég út í skóg! Þar er ég viss að hitta annað hvort víking eða ræningja, og hann kennir mér að verða ræningjafor- ingi, þegar ég verð stór. Það er langtum betra en að lesa“. En þá kom Blundur litli, og drengur- inn svaf eins og steinn til morguns. Stundu eftir miðjan morgun kom móð- ir hans að rúminu. „Rístu nú upp og klæddu þig“, sagði hún, „svo förum við bæði í skólann“. H ú s I r e y j an 39

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.