Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 10

Húsfreyjan - 01.04.1962, Blaðsíða 10
Rannveig Þorsteinsdóttir: Okkar á milli sagt Frá því fyrsta hefur stuðningur og rækt við heimilisiðnað verið eitt af aðalmálum Kvenfélagssambands Is- lands, og þótt annar aðili, Heimilisiðn- aðfélag Islands, hafi tekið að sér for- ustuna í þessum málum, halda kvenfé- lög og kvenfélagasambönd áfram að telja heimilisiðnaðarmál eitt af því merkasta, sem þau hafa með höndum. Það er því af gefnu tilefni, og í sam- ræmi við viðhorf kvenfélaganna, að þessi þáttur minnist á átak, sem nú er framundan í heimilisiðnaðarmálum. Dagana 28.—30. júlí n.k. verður hér í Reykjavík haldið norrænt heimilis- iðnaðarþing og norræn heimilisiðnað- ar-sýning. — Þingið og sýningin verð- ur haldið i Iðnskólanum í Reykjavik. I fréttabréfi, sem undirbúnings- nefndin hefur sent út, segir svo: Norrænt heimilisiðnaðarþing verður haldið hér i Reykjavík dagan 28., 29. og 30. júlí í sumar. Samtímis og ef til vill nokkuð lengur, verður hér sýning á heimilisiðnaði frá öllum Norðurlönd- unum. Þing og sýningar verða í Iðn- skólanum. Eins og mörgum mun kunnugt, hafa heimilisiðnaðarfélög á Norður- löndum með sér samband og samvinnu nokkra. Þriðja hvert ár hittast fulltrú- ar Norðurlandanna til fundar eða þing- halds um þessi mál, svo og annað það heimilisiðnaðarfólk, sem komið getur því við að mæta, og hafa með sér úrval heimilisiðnaðar frá hverju landi, sem svo er sýndur á sameiginlegri sýningu, hvert land með sína deild. Gefst þannig færi á að skoða nýjungar og bera sam- an árangur frá síðustu sýningu, jafn- framt því, að rædd eru á þinginu ýmis mál og vandamál heimilisiðnaðarins, fyrirlestrar haldnir og fræðsla önnur ýmis konar. Þing þessi eru þannig 15. hvert ár í hverju Norðurlandanna fyrir sig. Var haldið á íslandi í fyrsta sinn árið 1948, (6. þingið) og svo nú aftur 14. árum síðar (11. þingið). Veltur því á miklu að vel takist, þar sem svo langt er á milli þinga og okkur gefst ekki tækifæri aftur fyrr en að 15 árum liðn- um, að bjóða heim eða standa fyrir slíkri norrænni samvinnu. Heimilisiðn- aðarfél. Islands hefur fullan hug á að vel megi takast og hefur fyrir löngu hafið undirbúning að þingi og sýningu þessari og þá ekki sízt að sýningardeild íslands og hafa þegar fyrir nokkuð löngu ver- ið send bréf til Kvenfélagasambanda um allt land, um söfnun og val muna. Þá er einnig löngu hafinn undirbúning- ur að móttöku hinna mörgu erlendu gesta, sem væntanlega verða um 150, og með félögum Heimilisiðnaðarfélags- ins líklega nálægt 200. Ferðaskrifstofa ríkisins hefur góðfúslega tekið að sér að útvega hótelherbergi handa hiunm erlendu gestum, svo og að undirbúa og sjá um hópferðir þeirra um landið. Fé- 10 H ú s f r ey j an

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.