Húsfreyjan - 01.04.1962, Qupperneq 30
Gætið barnsins
Börnum er eðlilegt að vera forvitin og
handóð, svo að þau kynnist umhverfi
sínu. En fullorðnu fólki ber skylda til að
gæta barnsins og bægja öllum hættum
frá því.
Látið aldrei meðul, sýrur og þess kon-
ar hluti standa þar sem börn ná í þá.
Látið ekki svefnmeðul liggja á glámbekk.
(Sjá hér á eftir).
Á svipstundu getur barnið steypt yfir
sig skaftpotti með heitu vatni. Venjið
yður á að láta pottana alltaf standa svo
innarlega á vélinni sem hægt er. Látið
sköftin aldrei snúa fram, svo að börn
nái ekki í þau og fólk reki sig ekki á þau.
Illa getur farið, ef barn stingur fingr-
unum eða einhverjum hlut úr málmi í
innstunguna á veggnum.
Heppilegt er að setja lok í innstungur,
þar sem börn ná til. Svona lok þyrftu að
vera fáanleg úr efni sem ekki leiðir raf-
magn.
Því fyrr sem tekst að kenna börnum
að varast hættulegar rafmagnsleiðslur
því betra.
Bilaðar rafmagnssnúrur, tenglar og
rafáhöld eru stórhættuleg, og hafa oft
valdið bæði eldsvoða og dauðaslysum.
Látið því aldrei dragast degi lengur að
gera við slíka hluti, ef þeir eru bilaðir.
Jólaljósin gleðja barnið, en þau eru
hættuleg. Látið aldrei logandi kerti vera
á jólatré eða annars staðar, nema full-
orðnir séu nærstaddir og hafi gát á því.
Vitið þér, að mikil verðmæti glatast
árlega, vegna þess, að börn eru látin
leika sér með eldspýtur? Brýnið fyrir
börnunum, hve eldspýtur eru hættulegar.
Geymið ekki eldspýturnar þar sem óvita
börn geta náð í þær.
Skiljið aldrei börn ein eftir hjá logandi
eldi í eldstæði.
Oft hefur komið fyrir, að börn hafa
dottið út um opinn glugga og hlotið af
varanleg meiðsli eða jafnvel beðið bana.
Látið börn aldrei vera ein i herbergi, þar
sem gluggi er opinn og hátt er til jarðar.
Þegar þér lokið glugga, þá krækið hann
aftur bæði að ofan og neðan. öruggast er
að hafa stutta keðju eða rimla fyrir
gluggum á efri hæðum, ef börn eru á
heimilinu.
Látið börn aldrei leika sér með leik-
föng, sem eru hættuleg. Dýr, sem hafa
augu, sem fest eru með löngum prjónum,
eru hættuleg. Gefið börnum ekki önnur
leikföng en þau, sem eru örugg og hættu-
laus.
Auðvitað geymið þér rakblöð þar sem
börn ná ekki í þau. Gömlum og notuðum
rakblöðum komið þér örugglega í lóg.
Ótal margt fleira er auðvitað hættu-
legt börnum. Hér hefur aðeins verið bent
á fáeina hluti. En aðgætni og varúð á öll-
um sviðum er nauðsynleg til öryggis
barninu. Látið t. d. aldrei neitt þungt,
sem gæti fallið niður, hanga á veggnum
30
Húsfreyjan