Húsfreyjan - 01.07.1963, Page 8

Húsfreyjan - 01.07.1963, Page 8
Heimilis- iðnaðarfélag r* Islands 50 ára Heimilisiðnaðarfélag íslands (H. 1.) var stofnað 12. júlí árið 1913. Stjórnina skip- uðu: Jón Þórarinsson, fræðslumálastjóri, for- seti. Ingi Lára Lárusdóttir, ritari. Matthías Þórðarson, fornmin javörður, gjaldkeri. Ingibjörg H. Bjarnason, skólastjóri. Ásgeir Torfason, efnafræðingur. Sigríður Bjömsdóttir. Lfndir lögin skrifuðu 13 konur, og 21 karl- maður. H. I. var landsfélag, þótt flestir fé- laganna byggju í Reykjavík. Á stofnfundinum skýrði formaður und- irbúningsnefndar, frk. Ingibjörg H. Bjarna- son, frá því, að stofnun félagsins Iiafi fyrst veriö breyft á fundi í Lestrarfélagi kvenna veturinn 1911—’12. Félaginu voru samin ýtarleg lög. Meöal annars var tekið fram að tilgangi sínum byggist félagið ná með því að koma á fjöl- breyttum námskeiðum, kynna bækur, rit- gerðir o_g fyrirmyndir í ýmsum greinum beimilisiðnaðar, koma upp safni alls kon- ar heimilisiðnaðarálialda og benda á og út- vega sölustaði, bér og erlendis, fyrir íslenzk- ari iðnað, heimilisiðnað, listiðnað og annan iðnað. Þegar 1914 var liafizt banda með fjöl- breytt námskeið og voru þau styrkt af op- inberu fé, landsjóði eða bæjarsjóði. Smátt og smátt voru stofnuð fleiri beim- ilisiðnaðarfélög, til og frá um landið. Öfl- ugast var Heimilisiðnaðarfélag Norður- lands. Veitti Halldóra Bjarnadóttir því for- stöðu í mörg ár. Öll þessi félög sóttu til Al- þingis um styrk til starfsemi sinnar. Pétur á Gautlöndum, alþingismaður, gerði það að tillögu sinni, að það skilyrði yrði sett fyrir ríkisstyrk til heimilisiðnaðar- félaganna, að þau stofnuðu með sér sam- band. Sambandinu yrði svo veittur fastur styrkur, er það skipti milli félaganna. Sam- band íslenzka beimilisiðnaðarfélaga var svo stofnað 1920 og því veittur 5 þús. kr. árlegur ríkisstyrkur. Við stofnun Sambandsins varð H. I. í raun og veru félag Reykjavíkur, þótt Jiað béldi nafni sínu. Þrátt fyrir tvær beiinsstyrjaldir og ýmsa aðra örðugleika, starfaði H. I. alltaf að bugðarefnum sínum. Það gekkst fyrir sýn- ingum og fjölda námskeiða, gaf iit munst- ur og útvegaði áliöld til heimilisiðnaðar. í mörg ár styrkti Reykjavíkurbær saunia- námskeið á vegum félagsins. Hin félögin unnu á svipaðan hátt, livert eftir sinni getu. Með tilkomu húsmæðraskólanna og verk- námsdeilda annarra skóla, breyttist verk- svið lieimilisiðnaðarfélaganna. Þeim tók Jní að fækka, unz H. 1. var eitt eftir. Samband íslenzkra beiinilisiðnaðarfélaga var svo lagt niður 1959. Heimilisiðnaðarfé- lagi íslands voru J)á samin ný lög og gert að landsfélagi á ný. Meðlimir geta orðið fé- lög, nefndir innan félaga og einstaklingar. H. 1. gerðist J)á einnig meðlimur í Heimilis- iðnaðarsambandi Norðurlandanna í stað Sambandsins áður. H. í. liefur nú 35 þús. kr. ríkisstyrk til starfsemi sinnar. Árið 1952 stofnaði H. í., ásamt Ferða- skrifstofu ríkisins, beildsölufyrirtækið ís- lenzkur lieimilisiðnaður (1. H.). I. H. veil- ir framleiðendum margs konar fyrirgreiðslu við útvegun efnis og jafnframt leiðbeining- ar um gerð söluhæfra muna. Af ríkisstyrk H. í. ganga 25 J)ús. kr. árlega til I. H., enda veiltar í því augnamiði. Samstarfi H. I. og Ferðaskrifstofunnar var lokið 1957, og er nú Heimilisiðnaðarfé- lagið eitt um rekstur í. H. Á síðastliðnu sumri var J)ing Sambands heimilisiðnaðarfélaga Norðurlandanna báð bér í Reykjavík, í boði II. I. Tókst það með 8 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.