Húsfreyjan - 01.07.1963, Blaðsíða 14
Ragnheiður
Halldórsdóffir,
frá Hólmahjáleigu
100 ára minning
Eins og grein þessi ber með sér, er hún fyrir
nokkru síðan rituð. Var setlunin, að hún birtist
í ,,Hlín“ árið 1961, en kom of seint. En þar eð
,,Hlín“ kom eigi út síðastliðið ár, kemur greinin
hér fyrir almenningssjónir.
Ragnheiður var fædd að Ósabakka á
Skeiðum 17. febrúar 1861. Foreldrar
hennar voru Halldór Vigfússon og Þor-
björg Jónsdóttir, hjón búandi að Ósa-
bakka um langt skeið. Háðu þau lengi
harða lífsbaráttu við lítil efni; áttu og
fyrir 10 börnum að sjá. í þeim stranga
skóla lærði Ragnheiður ung að leggja
hug og hönd að verki, hvar sem þörfin
kallaði. Jafnframt kenndi lífið henni
snemma að fara vel með það, sem aflað
var eða áskotnaðist.
Vorið 1888, þegar systkinin voru flest
vaxin, fluttist Ragnheiður sem vinnu-
kona að Simbakoti á Eyrarbakka. Þar
átti hún 3ja ára dvöl, en hvarf síðan
sem hjú að Ljótarstöðum í Austur-Land-
eyjum. Á sama bæ var þá ungur vinnu-
maður, Jónas Jónasson að nafni, Land-
eyingur að ætt og uppruna. Felldu þau
Ragnheiður brátt hugi saman og gengu
að eigast 22. júní 1893. Voru þau tvö
fyrstu árin í húsmennsku að Ljótarstöð-
um. En vorið 1895 hófu þau búrekstur
að Hólmahjáleigu í sömu sveit. Mun
margur kunnugur ekki hafa horft björt-
um augum á það fyrirtæki. Jörðin var
lítil og léleg og efnin engin, sem byrjað
var með. En sagan gamla um kotið, sem
varð að kóngsríki, átti eftir að endur-
taka sig á vissan hátt í lífi og starfi
þeirra hjóna. Með óvenjulegri árvekni,
atorku, fyrirhyggju og hirðusemi, hófu
þau hið litla kot til nýrrar vegsemdar og
virðingar. Búið var aukið, ræktað land
fært út og húsin, eitt eftir annað, reist
frá grunni. Heimili þeirra varð um langt
skeið styrk stoð sveitar sinnar og jafn-
framt rómað fyrir þrifnað allan og
snyrtimennsku, utan húss og innan. Þar
ríkti fullkomin eining og ástúð inn á
við og gestrisni og góðvild út á við. Þar
var því öllum gott að koma og ánægju-
legt að dvelja.
Ragnheiður í Hólmahjáleigu var góð
kona, vel á sig komin og sérlega vel
verki farin. Húsfreyjusessinn skipaði hún
með sæmd, bæði í þrengri og rýmri kjör-
14
HÚSFREYJAN