Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 3

Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 3
ffusfreyjxui R'Vl?aVÍk Ú.gefondi: K.enfélogoeombond islondf ****** april-juni 1964 15. argangur GERÐOG VAL LEIKFANGA Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur og Barna- vinafélagið Sumargjöf, efndu til nám- skeiðs fyrir fóstrur á barnaheimilum og gæzlukonur á barnaleikvöllum borgarinn- ar, á tímabilinu 2. april til 24. júní nú í ár. Fengu þessir aðilar frú Guðrún Briem Hilt, uppeldisfræðing, til að annast verk- lega kennslu og flytja erindi á námskeið- inu. Frú Guðrún er búsett í Noregi, en ís- lenzk að upprima. Hefur hún um tuttugu ára skeið starfað við leikskóla og þeim skyldar stofnanir í Noregi og hefur þvi mikla reynslu að baki. Ritstjórn Húsfreyj- unnar bað hana að segja lesendum nokkuð af því sviði starfsins, sem hún hefur eink- um sérhæft sig á hin síðari ár, sem er gerð og val leikfanga. — Fyrir tveimur árum skipti ég um starfs- svið að nokkru leyti, segir frú Guðrún. Þá tók ég við forstöðu fyrirtækis, sem heitir „Riktige Leker” og hefur það verk- efni, að útvega og láta búa til leikföng, sem æskileg teljast handa börnum á öll- um aldursstigum. Þetta er fimmtán ára gamalt fyrirtæki og var heldur illa statt fjárhagslega, þegar ég kom þar til starfa, en það er að breytast. Þar, sem annars- staðar, var nauðsynlegt að notfæra sér auglýsingtækni nútímans. Með öðru móti er ekki hægt að vekja athygli manna. Ríkið á all-verulegan hluta í fyrirtækinu og þáttur í starfseminni er, að sinna öllum opinberum stofnunum, svo sem dagheim- ilum og leikskólum, en annars er öllum frjálst að leita til okkar, sem þess óska. Markmið fyrirtækisins er, að upplýsa for- eldra um, hvaða leikföng séu bezt og hafa þau tæki á boðstólum, að láta stofn- unum, sem annast börn, slík leikföng í té og einnig, að útvega þeim ákjósanleg húsgögn. Þegar haldnar eru stórar sýn- ingar til að kynna fyrirtækið, þá veitir ríkið styrk til þess. Þá velur og útvegar fyrirtækið bæði tæki og leikföng handa stofnunum, sem annast börn, sem að einhverju leyti búa við örkuml, andleg eða líkamleg, svo sem lömuð börn, heilalömuð (spastisk) van- gefin o.s.frv., en einkum þau síðastnefndu þurfa nokkuð sérstök leikföng. Við fáum leikföng og önnur tæki víða að. Nokkuð af þeim er búið til í fangels- um og geðveikrahælum og má segja, að þá sé ekki einungis verið að hugsa um að fá ódýra framleiðslu, heldur verið að sameina læknandi starf og uppfylla mark- aðsþörfina. Sumt flytjum við líka inn frá öðrum löndum, því við reynum að fylgj- ast með öllu því bezta, sem fram kemur og notfæra okkur það. Við athugun á leikföngum hér á landi 1 HÚSPREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.