Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 16
geyma í sérstökum hulstrum. Fáanlegur er
pappír, sérlega ætlaður til að geyma í silf-
ur, og lilífir því vel. Látið silfurmuni ekki
standa lengi óþvegna né bíða í matarleifum
eða matinn bíða að óþörfu á silfurfötum.
Látið silfurmuni og stálmuni ekki liggja
saman í bleyti, þeir bafa ólieppileg ábrif
livorir á aðra, og valda þá flekkjum og jafn-
vel skemmdum hvorir á öðrum.
Hrcinsiefni á silfur:
Flokkur A
Argol
Fubrima puts
Glitto
International Silver
Polisli
Silverkatten
Silvo
Sterling
Surprice
Ge-Hallin
Zing
Flokkur B
Dura-glit
Fama
Harens Krokusvadd
Town Talk Wool
Wipsy
Flokkur D
Dokton
Flittiga Lisa
Ilarens Krokusduk
Silbo
Sterling
Flokkur E
1002
S 51
Silvano
Silver Quick
Blend
Flokkur F
Lyster
Heimildir: Rád og Resultater, nr. 2 — 1962. Rád
och Rön, nr. 9 — 1960 og Forbrukerrapporten, nr.
4 — 1963. Framhald á bls. 35.
Notið bleikivatn
og klór
með varúð
Notið hœfilegt magn af þvottaefni.
Ofnotkun á klóri
er afturför í þvottatœkninni!
Nýlega hafa birzt á Norðurlöndunum
varnaðarorð til húsmæðra við ofnotkun
á bleikiefnum á þvott. Tvenns konar
bleikiefni eru í notkun, klórbleikivatn og
perborat. Notkun á klórbleikivatni er
nokkuð varhugaverð, og það er komið
tmdir hitastigi og óhreinindum, hve mikið
magn á að nota og hve lengi þvotturinn
þarf að liggja í því. Mjög erfitt er að segja
fyrir um þetta af nákvæmni og því er
talið að þessi aðferð til að fá þvottinn
hvítan sé of erfið og vandasöm fyrir hús-
mæður, ef ekki á að fylgja henni hætta á
óþarfa sliti á þvottinum.
Óbundið (óstabiliserað) perborat hefur
einnig eyðileggjandi áhrif á vefjarefni. En
flest öll þvottaefni sem hér eru seld inni-
halda bundið perborat, þ.e.a.s. þá verkar
það ekki fyrr en við háan hita og skaðleg
áhrif þess á vefjarefnin verða svo lítil
sem mögulegt er. Ef við óskum eftir að fá
sérstaka bleikingu á þvottinn, kannske
vegna ljótra bletta eða vegna þess að
þvotturinn er grár og óbragðlegur, er
hægt að þvo af sérstakri natni, t.d. með
því að hita vel og þvo nokkru lengur en
venjulega, en þó ekki lengur en í 15 mín.
og hita ekki hærra en í 90°C. Notið hæfi-
legt magn af þvottaefni, ekki of lítið —
þá verður vatnið stamt og froðulaust, ekki
heldur of mikið — þá freyðir sápan út
yfir vélina og mekaniskar verkanir vél-
arinnar njóta sín ekki. Hafið hæfilega
mikið í vélinni, vigtið þvottinn af og til i
vélina, sé of litið í tunnuvélunum, slíta
þær meira en þörf er á. Sé hins vegar of
mikið í þvælis- eða þeytispjaldsvélum þvo
14
HÚSFREYJAN