Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 14
FRÁ LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆÐRA
Flekkótt silfur
og silfurfægiefni
Röng notkun á þvottaefnum getur valdið
djúpum blettum á silfri, sem ekki nást af
me& fœgiefni, og þarf þái að slípa þá af með
vélum. NotiS ákveðið og hóflegt magn,
ekki „upp á slump“.
Rannsóknir liafa farið' fram á efnum og
aðferðum við að fægja silfur, bæði í Stokk-
liólmi og Osló. Oft liafa horizt fyrirspurnir
um þessi efni, t. d. hvort þau væru nokkuð
skaðleg fyrir silfrið o. fl. í sambandi við ný
fægiefni, sem koma fram. Silfrið er dýrt og
kallast góðmálmur, það er einnig tiltölulega
haldgott gagnvart kemiskum áhrifum, en
þó eru sérstök efni, sem hafa áhrif á það,
svo sem brennisteinn, er myndar efnasam-
bandið silfursúlfíð á silfrinu við vissar að-
stæður.
Allir þekkja hvernig silfurskeiðar
dökkna, þegar borðað er egg með þeim eða
þær liggja í liveravatni. í báðum tilfellun-
um er það brennisteinn, sem veldur dökkv-
anum. Einnig liefur verið kvartað yfir dökk-
um blettum sem koma fram á silfurborð-
búnaði við uppþvott, þar sem liveravatn er
hvergi nærri. Þessir blettir (korrosion) eru
erfiðari en venjulegur dökkvi á silfrinu, og
nást ekki af við venjulega fægingu.
Mönnum hefur dottið í liug, að þeir stæðu
í sambandi við liin nýju uppþvottaefni.
Tilraunir með uppþvott á silfri liafa leitt
í ljós, að þessir flekkir koma ekki fram,
þegar notaðir eru sápuspænir eða sódi við
uppþvottinn, (eins og gert var nær ein-
göngu fyrir stríðið) og að önnur þvottaefni,
sem nú eru aðallega notuð við uppþvott
valda heldur ekki þessum dökku flekkjum
eða „korrosion“, ef þau eru 1101118 í réttu
magni (samkv. fyrirmælum) og leyst full-
komlega upp í þvottavatninu (þvottalögur-
inn er að þessu leyti auðveldastur í notk-
1111). Röng notkun þvottaefnanna veldur
þessum svörtu flekkjum, þ.e.a.s. ef notað er
of mikið og þau illa leyst upp, eða það sem
er enn verra, að dreifa þurru þvottaefninu
heint á silfurborðbúnaðinn. Það hefur einn-
ig komið fram, að mjög er óheppilegt að
láta silfrið liggja lengi kyrrt í uppþvotta-
vatni, sem sápa er í. Salt í uppþvottavatn-
inu er einnig óheppilegt og eykur á inynd-
un dökku flekkjanna, en það er t. d. í mat
og matarleyfum. Mörg hin nýju þvottaefni
verka jafn vel, hvort sem notaðir eru fáir
dropar af þeim eða heil matskeið.
Mynd aj silfurskeit) með hinum sérstöku dökku
hlettum, sem koma jrum við ranga notkun á þvotla-
ejnum.
12
HÚSFREYJAN