Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 18
heimilisþóttur
UIVI GRÆNMETI
Utvarpserindi 14/4 1964
Nú er þegar kominn tími til að fara að
hugsa fyrir grænmetisræktinni. Mér er
hún efst í huga vegna þess hve mikilvægt
það er að auka neyzlu grænmetis. Fátt
gefur eins mikla tilbreytni í daglegu fæði
og það að geta boðið uppá ýmsar teg-
undir grænmetis og garðmatar. Það er
eins og fiskurinn og kjötið verði annar og
ennþá betri matur, þegar litskrúðugt
grænmeti og salöt eru framreidd með. En
þar sem flestum finnst dýrt að kaupa
grænmeti er um að gera fyrir alla sem
ráð hafa á garðbletti eða landi að rækta
sjálfir, þó ekki sé nema fáar tegundir, þær
sem auðræktaðar eru og ekki krefjast
mikillar umhirðu. Ef grænmeti á að ná
þeim sessi, sem því ber meðal fæðuteg-
undanna, þurfa sem flestir að eiga í garði
sínum grænmetisbeð með þeim auðrækt-
uðu og fljótsprottnu jurtum, sem bezt
þrífast hér. Ráðlegt er að byrja á að
rækta það, sem gefur vissa uppskeru, en
láta það vandmeðfama og sjaldgæfa bíða,
þar til nokkur reynsla er fengin.
16
HÚSPRETJAN