Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 33
2. mynd
Þar sem gluggi og dyr eru hlið við hlið er snotrast
að setja tjöld fyrir það sem eina heild. A neðri
myndinni eru einungis þliðartjöld liengd upp undir
Irélista, er þá liægt að ganga um dyrnar óhindrað.
Efri myndin sýnir flóknari uppsetningu og ekki eins
snotra.
Þvoið gluggatjöld úr gerviefnum mjög varlega (næ-
lon, orlon, dralon, terilín o. fi.). Þvoið þau úr
vægu, volgu sápuvatni. Hafið vatnið tiltölulega mik-
ið, hreyfið tjöldin vægilega, kreistið þau ekki þann-
ig að skörp hrot komi í þau. Takið tjöldin upp úr
sápuvatninu og setjið þau beinl í skolvatnið. Látið
þvottinn taka sem stytztan tíma, lielzt ekki meira
en fáeinar mínútur. Gott kann að vera að setja glyc-
erin (1—2 matsk. í stórt vaskafat) í skolvatnið til
þess að draga úr því að efnin verði rafmögnuð.
Vindið tjöldin ekki, en dragið þau rennblaut upp
úr skolvatninu, látið síga úr þeim bleytuna, en
hengið þau síðan fyrir gluggana.
3. mynd
Þar sem gluggar eru 2 saman getur verið snoturt að
hengja fyrir J)á sem einn væri. Ef tjöldin eru liengd
upp eins og sýnt er á vinstri myndinni, sýnast
gluggarnir hæði hærri og mjórri, og er það ekki
eins snoturt.
Heimildir: F-rapporten, 1 - 1961 og Dúkur og garn.
HÚSFREYJAN
31