Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 6

Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 6
Kvennaheimilið HALLVEIGARST AÐIR Fyrir mörgum árum síðan hófust um- ræður meðal reykvískra kvenna um nauð- syn þess, að konur ættu sér liúsnæði fyrir félagsstarfsemi sína. Árin liðu og liug- myndin þróaðist og stækkaði. Fjársöfnun hófst, eigi aðeins í Reykjavík lieldur og víðs vegar um landið. Gengust einstakar konur eða kvenfélög einkum fyrir þessu. Á stríðsárunum var málinu lítt lireyft, nema þá helzt meðal kvenfélaga í Reykjavík. En í stórhug eftirstríðsáranna var liafizt handa á ný og safnað fé af meira kappi en fyrr, enda hugmyndin orðin sú að byggja eigi að- eins félagsheimili, heldur einnig vistlieimili fyrir námsstúlkur, auk þess sem ýmis kon- ar önnur starfsemi átti að hafa þarna aðset- ur t. d. var fyrirliugað að reka lesstofu fyrir konur og jafnvel aðra fyrir börn og átti þá Lestrarfélag kvenna að flytjast í Hallveig- arstaði. Teikningar voru gerðar í samræmi við þessar liugmyndir, en illa gekk að fá þær samþykktar af byggingayfirvöldum meðal annars af því, að lóðin, er stofnunin átti, reyndist eigi nógu rúmgóð fyrir svo umfangsmikla byggingu. Meðan á þessu gekk var fjársöfnun haldið áfram ósleiti- lega, svo að telja mátti, að byggingarsjóð- urinn væri orðinn alldigur um þær mund- ir, samanborið við byggingarkostnað og verðgildi peninga á þeim árum. Að lokum tókst að fá eina teikninguna samþykkta, enda liafði þá lítillega verið dregið úr stærð vistheimilisins. 1 gleði sinni yfir þessuin sigri lét framkvæmdastjórn Hallveigarstaða þegar hefja framkvæmdir til undirbúnings byggingar á lóð stofnunar- innar, sem eins og kunnugt er, liggur að Garðastræti milli Túngötu og Öldugötu. En þá kom nýtt og óvænt bahh í bátinn: Næstu nágrannar lóðarinnar við Túngötu grófu fram úr myrkrum gleymskunnar, gandan samning, þar sem svofelld kvöð fylgdi þeim hluta lóðarinnar, sem að Túngötu lá, að þar mætti aðeins byggja íbúðarlnis af vissri teg- und. Kröfðust þessir nágrannar þess, að bygging Hallveigarstaða yrði þegar í stað stöðvuð með lögbanni, sem og var gert. Hóf- ust nú samningaumleitanir og síðar mála- ferli, er stóðu yfir í nokkur ár, en lauk loks með dómi Hæstaréttar, Hallveigarstöðum í vil. Á því árahili, sem málaferlin stóðu yfir, féllu peningar mjög í verögildi, svo að sýnt var, að byggingarsjóður Hallveigarstaða myndi lítt hrökkva fyrir stórliýsinu, sem fyrirhugað hafði verið að reisa. Eftir ræki- lega athugun og íhugun var þó ákveðið að hefjast handa við hyggingu hússins, en sleppa nú með öllu þeirri liugmynd að hafa þarna vistlieimili. Að vísu hafði talsvert fé safnast á þann liátt, að gefnar voru gjafir í því skyni, að ýms héruð ættu forgangsrétt að herbergjum. Höfðu ýmist einstaklingar, kvenfélög eða kvenfélagasambönd gefið fé í þessu skyni, auk þess sem tvö bæjarfélög og nokkur sýslufélög höfðu lagt fram fé í sama tilgangi. Ollum þessum aðilum var skrifað, eftir að sú ákvörðun var tekin að liafa þarna ekki gistiherbergi og þeim gefinn kostur á að endurheimta fé sitt með vöxtum og vaxtavöxtum. Gerðu nokkrir það, en lang- flestir gáfu stofnuninni féð, þrátt fyrir það, að vistheimilið var nú ekki lengur í áætlun- inni. Ný leikning var gerð, sem þegar náði sam- þykki skipulagsnefndar og byggingarnefnd- 4 HÚSPBEYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.