Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 8

Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 8
Afi sat við gluggann og horfði út á göt- una. I dag var hann 79 ára. Systir Anna hafði fært stólinn hans út að glugganum svo að hann sæi ef einhver kæmi í heim- sókn til hans. Afi var ánægður. Á hjúk- runardeildinni var að öllu leyti gott að vera. Heilsan var ekki sem verst, minnið var gott og lesið gat hann einnig, en það voru fæturnir, sem brugðust. Þeir vildu ekki bera hann lengur, og þegar fæturnir biluðu, var hann fluttur á hjúkrunardeild- ina. Já, hérna var gott að verð. En hann saknaði fjölskyldunnar, einkum bama- bamanna, því að afa þótti vænt um æsk- una. Börnin þeirra Jens og Guðrúnar hafði hann alls ekki séð hér á hælinu og ekki heldur Þór og Gmrnar, drengina þeirra Áslaugar og Karls. En Elín heimsótti hann á páskum og jólum. Hvenær voru þau Óli og Sigríður hér síðast? Nú það gat hann auðveldlega séð, því afi átti minnis- bók og í hana skrifaði hann allt, sem ekki mátti gleymast. Þarna var minnisbókin og þarna stóð það: 3. febrúar, Sigríður og Óli koma í heimsókn. Afi leit til sólar. Hvað tíminn var fljótur að líða. Gat það verið, að það væri næstum því ár, síðan þau heimsóttu hann? Honum þótti vænt um minnisbókina. Hún gat verið mjög fróðleg. Sjáum til. Þarna stóð við 5. marz: 1 dag bar systir Anna mér kveðju frá Karli. Hann hafði hringt til hælisins og spurt um líðan mína. En það var líka nærri ár síðan. Karl var elstur af drengjvmum. Hve gamall var hann nú? Hann hlaut að vera nálægt fimmtugu. Já, tíminn flaug áfram, það gerði hann sannarlega. 1 raun og veru var ekkert við því að segja, þótt hann sæi Karl svona sjaldan. Hann átti svo ann- ríkt við verzlunina. I dag mundi hann fá margar heimsókn- ir. Þór og Gunnar kæmu áreiðanlega og ef til vill Óli og Sigríður. Það yrði ánægju- legt að sjá þau aftur. Karl brygðist vissu- lega ekki og ekki heldur Jens og Guðrún, auðvitað hann Jens og Guðrún. Afi stakk minnisbókinni í vasann. Nú væri notalegt að fá sér í pípuna. Það var mikil blessun að geta fengið sér reyk, þegar hann langaði til. Enginn hafði neitt á móti því. Hann tók upp pípuna og ætl- aði að fara að troða í hana, en varð þess þá var að tóbakið var þrotið. Jæja. Karl mundi bráðum koma og hann kæmi varla tómhentur í dag. Sannarlega fengi hann nóg af tóbaki, og pípan hefði ekki nema gott af því að hvíla sig. Sjötíu og níu ár var langur tími. Þann 17. næsta mánaðar voru tuttugu og fjög- ur ár síðan María dó. Sárt var, að hún skyldi ekki fá að sjá öll barnabömin. Nú, en hann sá þau nú heldur ekki svo oft. Hefðu fæturnir dugað betur, þá hefði hann heimsótt þau öll. Hann gat ferðast til þeirra allra með strætisvagninum. Leið- in var ekki lengri en það. Afi horfði á úrið. Að hálftíma liðnum kæmi systir Anna með hádegisverðinn. Systir Sólar- geisli, eins og hann kallaði hana. Og hálf- ri stundu síðar bjóst hann við póstinum. 1 dag yrði áreiðanlega mikill póstur. í raun og veru væri gott að fá hádegisverð- inn áður en heimsóknir hæfust. Systir Sólargeisli hafði sagt, að þegar gestirnir kæmu, gætu þeir drukkið með honum kaffi í stofunni. Sjötíu og níu ár eru mörg ár. Hann skyldi fá sér vel í pípuna á af- mælisdaginn. Og nú byrjuðu heimsókn- irnar fljótlega. Það væri ótrúlegt, ef eng- um dytti tóbak í hug! Þessi löstur hafði fylgt honum lengi, lengi. Eða var það ann- ars nokkur löstur, þegar því fylgdi svona mikil ánægja? Dymar opnuðust og systir Anna kom með hádegisverðinn á bakka. Hún brosti eins og venjulega, en afi sá ekki, að í dag 6 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.