Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 9

Húsfreyjan - 01.04.1964, Blaðsíða 9
Styrktarfélag vangefinna Ég hefi verið beðin að segja hér nokkuð frá Styrktarfélagi vangefinna og störfum þess. Er mér þó nokkur vandi á höndum, því erfiðara er að segja greinilega frá í stuttu máli en löngu. Styrktarfélag vangefinna var stofnað 23. marz 1958 og er því eitt af mörgum almenum samtökum um velferðarmál, er orðið hafa til hérlendis frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Stofnendur voru hátt á annað hundrað, flestir foreldrar eða nánir aðstandendur vangefins fólks. I 2. grein laga félagsins segir svo um tilgang þess: Tilgangur félagsins er að vinna að því: a) að komið verði upp nægum og við- unandi hælum fyrir vangefið fólk, sem nauðsynlega þarf á hælisvist að halda b) að vangefnu fólki veitist ákjósanleg skilyrði til að ná þeim þroska, sem hæfi- leikar þess leyfa var bros hennar ofurlítið alvörublandið. Hún sat hjá honum, meðan hann borð- aði. Því var hún ekki vön, en í dag gerði hún það. Systir Anna hlustaði á afa. Hann sagði henni frá börnunum og barnaböm- unum. Þau höfðu öll verið hamingjusöm í lífinu og komizt vel af efnalega. En Karl var þó einkum á grænni grein. Hann átti bíl og búgarð í sveit. Meira að segja reglu- lega fallegan búgarð. 1 sumar mundu þau Karl og Áslaug áreiðanlega sækja hann á bílnum. Og hann mundi fá að búa hjá þeim um tíma. Júlí var dásamlegur mán- uður í sveitinni. Systir Anna hlustaði með eftirtekt. Afi rifjaði líka upp minningar frá löngu liðn- um tíma. Hann talaði um hina góðu konu sína og fallega heimilið þeirra. Og augun í afa ljómuðu, þegar hann minntist Maríu. Hún var ekki aðeins góð kona, heldu einn- ig göfug móðir, sagði hann. Hún hafði annazt svo vel um börnin og heimilið. Eftir máltíðina tók afi upp tóbaksskjóð- una, eins og af gömlum vana. En hann stakk henni fljótlega aftur í vasann. Nú, tóbaksskjóðan skyldi fyllt innan skamms. Engin hætta á öðru. Máske kæmi Karl með tvo pakka. Hann var sannarlega eng- inn nirfill. Svo varð systir Anna að fara. — Eg bíð með kaffið þangað til heimsóknirnar hefjast, sagði afi. Þegar dyrnar opnuðust nokkru eftir hádegið var það systir Anna, sem kom með kaffibakkann. Á bakkanum voru tveir kaffibollar. — Við drekkum kaffið saman, sagði hún blíðlega og lagði tóbaks- pakka í höndina á afa. — Þetta var sann- arlega góð gjöf, sagði afi feginslega. Þau drukku kaffið saman, og afi naut þess að reykja pípuna sína. — Hefur ekki komið neinn póstur til mín í dag? spurði hann. — Nei, svaraði systir Anna. — En það kemur lika póstur á morgun. — Já, auðvitað — en — jæja —, hann nagaði pípumunnstaykkið, — það var ekki svo auðvelt að gefa sér tíma til allra hluta, sagði hann. — Börnin mín hafa margt að sýsla og unga fólkið hefur svo margvís- leg áhugamál. Eg gat ekki vænzt þess, að þau myndu eftir þessum degi. þau koma áreiðanlega seinna, öll saman. — Já, vertu viss um það, sagði systir Anna. þau koma áreiðanlega einhvem annan dag. Og svo má aðeins bæta þvi við, að þau komu seinna, öll saman. — Systir Sólar- geisli sat aftarlega í kapellunni og hugsaði með sjálfri sér: ,,Hann afi er ekki sá eini“. Góða nótt! HÚ3PREYJAN 7

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.