Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 10

Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 10
c) að starfsorka vangefins fólks verði hagnýtt d) að einstaklingar, sem kynnu að vilja afla sér menntunar til þess að annast van- gefið fólk, njóti ríflegs styrks í því skyni. Eins og ljóst er af fyrstu grein fer því fjarri, að til séu næg vistheimili fyrir þá einstaklinga sem á þeim þurfa að halda, hvorki nú né fyrir sex árum. Lög um fá- vitahæli voru sett á Alþingi þegar á ár- inu 1936, mest fyrir atbeina Guðrúnar heitinnar Lárusdóttur. Þá var eitt hæli starfandi hérlendis að Sólheimum í Gríms- nesi. Það tók til starfa 1929 og starfar enn undir stjórn sömu konu frá upphafi, Sesselju Sigmundsdóttur og verður braut- ryðjendastarf hennar seint fullþakkað. Ellefu árum eftir lagasetninguna um fá- vitahæli tók til starfa hæli á vegum ríkis- ins að Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Vistmenn þaðan voru svo fluttir í Kópa- vogshælið er það tók til starfa 1952. Ár- ið 1954 var stofnað fávitaheimili að Skála- túni í Mosfellssveit og gengust nokkrar góðtemplarastúkur í Reykjavík fyrir stofnun þess. Sólheimar og Skálatún eru sjálfseignarstofnanir. Á þessum þrem hælum voru um 130 manns 1958. Ekki voru til neinar tæmandi skýrslur um fjölda vangefinna á landi hér, en reiknað með sömu hundraðstölu og annars stað- ar eða 1800—2000 manns á öllu landinu. 350 manns af þeim hóp þurfa nauðsynlega á hælisvist að halda sökum greindarskorts og mun það sizt ofreiknað. Efndir á fyrir- heitum um nægilegt og viðunandi hælis- rúm, sem gefin eru í áðurnefndum lögum, höfðu lengi látið á sér standa, og mun orsökin hafa verið fjárskortur og nokkurt tómlæti opinberra aðila jafnt og aðstand- enda. Styrktarfélag vangefinna beitti sér fyrir því þegar á fyrsta starfsári sínu að stofn- aður var með lögum Styrktarsjóður van- gefinna. í þennan sjóð renna nú 30 aurar af hverri öl- og gosdrykkjaflösku, sem seld er í landinu. Fé úr sjóðnum skal ein- göngu varið til þess að byggja hæli og aðrar stofnanir fyrir vangefið fólk og bæta þann húsakost, sem fyrir er, eins og sagt er í skipulagsskrá sjóðsins. Sjóðurinn er í vörzlu félagsmálaráðuneytisins, en stjórn styrktarfélagsins hefur tillögurétt um veitingu úr honum. Er þetta drjúg tekju- lind og langstærsta skrefið, sem stigið hefur verið í áttina til að leysa þau vanda- mál, er skapast á umræddum vettvangi. Á öllum hælum, sem nefnd voru standa yfir byggingaframkvæmdir fyrir fé úr sjóðnum . Búið er að skipuleggja að mestu, hvernig hælin skuli byggð upp í framtíðinni. Verður aðalhælið í Kópavogi og samanstendur af smáhúsum og verða 12—20 vistmenn í hverju. Starfsmanna- hús hefur þegar verið reist í Kópavogi fyrir fé úr styrktarsjóðnum og mun það rúma allt starfsfólk hælisins, þótt það stækki um helming frá því sem nú er. I Kópavogi eru nú rúmlega 100 vistmenn. Þar eru í smíðum tvö vistmannahús, er væntanlega verða tekin í notkun á næsta ári og bæta þá úr brýnni þörf, því að mikil þrengsli eru á hælinu. Þá er mjög aðkallandi að byggja í Kópavogi hús yfir starfsemi lækna og sálfræðinga, en slika þjónustu þarf hvert fullkomið hæli að hafa. Ekki er í ráði að stækka Skálatúns- hælið eða Sólheima til muna og ekki hafa verið ráðgerðar hælisbyggingar á öðrum stöðum. í Skálatúni eru 27 börn og óvið- unandi húsnæði. Þar hefur þegar verið reist starfsmannahús og hafin er nýlega undirbúningsvinna að nýbyggingu, sem á að rúma 30 vistmenn. Á Sólheimum eru um 40 vistmenn. Þar er nú í smíðum hús fyrir eldhús og borðstofur hælisins. Á þessu sést að miklar framkvæmdir hafa verið á undanfarandi árum á þessu sviði og munu verða á næstu árum. Vonandi tekst að búa svo um, að hver einstakling- ur sem þarf á hælisvist að halda geti feng- ið hana án tafar, að ekki þurfi að hafa fá- vita í heimahúsum við erfið skilyrði og að fullorðnir foreldrar þurfi ekki að hafa áhyggjur af því, hvað um andlega fötluð börn verði eftir sinn dag. Þetta tvennt hefur um árabil verið aðstandendum hið mesta áhyggjuefni. 8 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.