Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 11

Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 11
Greindarskortur er að sjálfsögðu á mis- munandi háu stigi. Greind manna er mæld með svonefndum greindarprófum, sem of langt mál yrði að lýsa hér. Nægir að geta þess að meðalgreindur maður hefur ,,greindarvísitölima“ 100. Sá einstakling- ru-, sem hefur greindarvísitölvma 75 og þar undir telst vangefinn eða fáviti, eins og réttnefnt er, þótt orðið hafi illu heilli fengið niðrandi merkingu í daglegu tali. Fávitum er svo skipt í þrjá hópa: örvita, hálfvita og vanvita. Þeir fyrstnefndu þurfa nær alltaf á hælisvist að halda, þeir næstu fyrr eða siðar á ævinni. En vanvitarnir, þeir sem jaðra við almenna meðalgreind eru langflestir. Það er álit mitt, að þegar búið er að leysa hina brýnu þörf, sem er á hælum fyrir þá, sem mest vantar að greind til, verði flokkur vanvitanna sá, sem mest þarf að aðstoða. Þetta fólk þarf á skólum að halda við sitt hæfi, þvi að það getur margt lært, ef rétt er á haldið. Það þarf að fá hentuga og viðráðanlega vinnu og það þarf um fram allt að eiga sér athvarf og vera undir stöðugu eftir- liti. Mýmörg dæmi mætti nefna um fólk, sem hefur lent á glapstigum vegna greind- arskorts, fólk, sem hefði getað orðið nýt- ir borgarar, ef starfsorka þesss hefði verið hagnýtt á réttan hátt. Hér á landi er að- eins til einn skóli fyrir tornæm börn og hefur hann aðeins starfað undanfarin þrjú ár. Slíkir skólar þyrftu að vera miklu fleiri í þéttbýlinu, ennfremur fleiri hjálp- arbekkir í barnaskólunum. Það er fyrsta skrefið, síðan þyrftu að koma vinnustofur og vinnumiðlun, er tæki við fólkinu er það kemur út úr skólunum og jafnvel sér- stök heimili, er það gæti búið á, ef það á hvergi athvarf eins og stundum vill verða. Reynsla erlendis hefur sýnt, að kenna má langflestum fávitum eitthvað hagnýtt starf. Slíkt kostar geysimikla starfskrafta og þolinmæði, en það er hægt. Starfið og gleðin af því kemur öll til þroska, vand- inn er sá að finna, hvað hverjum og einum hæfi bezt. Þessi atriði, sem ég hef rætt um hér síðast verða áreiðanlega ofarlega á baugi á málefnaskrá Styrktarfélags van- gefinna í framtíðinni. Það hefur þegar riðið á vaðið með því að koma á f ót mynd- arlegu dagheimili fyrir vangefin böm hér í Reykjavík. í fyrstu var þessi starfsemi rekin í smáum stíl í leiguhúsnæði, en seint á sumri 1960 var hafizt handa um byggingu dagheimilisins Lyngáss við Safa- mýri 5. Húsið var fullbúið 1962 og eru þar nú 40 vangefnir vistmenn, flest börn frá 4—12 ára. Styrktarfélagið lagði sjálft fram um helming byggingarkostnaðar og hefur rekið heimilið til þessa, Styrktar- sjóður vangefinna og Reykjavíkurborg greiddu hinn hluta byggingarkostnaðar- ins. Börnin dveljast á heimilinu frá 9—18 á daginn og eru flest flutt í bílum að og frá staðnum. Þau fá þar hádegisverð og siðdegishressingu. Daggjöld eru þau sömu og hjá Barnavinafélaginu Sumargjöf. Við heimilið starfa 2 handavinnukennarar og 1 kennari í bóklegum fræðum og eru þeir launaðir af ríkinu. Læknir og sálfræðingur starfa þar. Enn vantar tilfinnanlega talkennara, sjúkraþjálfara og helzt tón- listarkennara, því flest þessara barna hafa yndi af tónlist og sérlega næmt eyra fyrir hljóðfalli. Heimilið hefur enn aðeins starfað af fullum krafti í tæp tvö ár og er enn í mótun, þar sem þetta má telja algera nýjung hérlendis. Kostnaður við rekstur dagheimilisins er mikill, og hefur félagið sjálft annast hann að mestu eins og sagt var fyrr, þó með nokkrum styrk frá Reykjavíkurborg. Styrktarfélagið rekur skrifstofu að Skólavörðustíg 18 í Reykjavík og sér hún um dagleg störf, annast upplýsingastarf- semi og fleira. Langmestur tími fer þó í öflun tekna, en þær hefur félagið haft mesta af árlegu happdrætti, merkjasölu, sölu minningarspjalda o.fl. Auk reksturs dagheimilisins og skrifstofunnar hefur fé- lagið undanfarin ár veitt talsverða styrki til þeirra, er fara vilja utan og læra að annast vangefið fólk ogkennaþví.Eiga þeir styrkir vonandi eftir að gefa ríkulegan ávöxt. Skortur á sérmenntuðu starfsliði er mikill. Þó bætti mikið úr brýnni þörf, er Framhald á bls. 33 HÚSFREYJAN 9

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.