Húsfreyjan - 01.04.1964, Síða 21

Húsfreyjan - 01.04.1964, Síða 21
Notið steinseljuna til skrauts og bragðbætis. Hentugast er að klippa hana með eldhússkær- unum. Á miðmyndinni er hentugur hnífur, sem notaður er m. a. til að skera kál í ræmur. Neðst er mjög gott rifjárn úr ryðfríu stáli, en æski- legt er að áhöld, sem grænmeti er skorið með, séu úr því. urnar, sem verða að víkja þegar grisjað er, því að grænkál er ætt á öllum þroska- stigum á fyrra ári, siðan má svo nota neðstu blöðin af plöntunum, sem eftir standa, án þess að taka þær upp, geta þær þá haldið áfram að vaxa. Ein er sú jurt, sem öðrum fremur prýð- ir matborðið hvar og hvenær sem er, og á vel við flesta ef ekki alla þá kjöt- og fiskrétti, sem koma á borð okkar, og er ómissandi til skrauts og bragðbætis jafnt við hversdags máltíðir sem viðhafnar- veizlur, en það er græna salatið. Af því eru til mörg afbrigði, flest þrífast þau vel í skjóli annarra planta, og með því að sterk birta er þeim ekki nauðsynleg, má planta þeim á milli annarra jurta sem lengur eru að ná þroska, ef þörf er á að spara plássið. Salat er svo viðkvæmt og stökkt að það lætur mjög á sjá við flutn- ing og dreifingu, er það því oft orðið þvælt og farinn af því frískasti blærinn þegar það kemur til neytenda, ólíkt því salati, sem við tökum upp döggvað og fagurgrænt úr eigin garði. Með því að sá fyrsta salatinu inni má lengja tímann, sem salatuppskeran varir, það er um að gera að hann sé sem lengstur, því að eng- inn verður nokkru sinni leiður á salati. Steinseljan er álíka vinsæl og salatið, hana ætti ekki einungis að nota til skreyt- inga, heldur gleyma aldrei meðan nóg er til af henni í garðinum að klippa svo mik- ið af henni yfir kartöflurnar, jafningana og kjötsúpurnar að fólkið venjist bragð- inu, sem er sérstaklega ferskt og hress- andi Lengja má uppskerutímann, bæði með þvi að sá steinseljunni inni, og með því að taka inn í potta eða kassa stein- seljuhnausa úr garðinum að haustinu, og láta standa í kjallara fram eftir vetri. Steinselju má frysta með sæmilegum ár- angri, er hún þá skoluð og þerruð vel, en ekki soðin, og sett annaðhvort heil eða klippt í umbúðir. Spínat er ein af þeim jurtum, sem allir geta ræktað, og fátt er bragðbetra en fyrstu spinatblöðin. Bezt er það aðeins hitað í mjög litlu smjöri, en engum hveiti- jafningi blandað í. Það er um að gera að nota spínatið um leið og það sprettur, og spara yfirleitt ekki að nota allt sem æti- HÚSFREYJAN 19

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.