Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 39

Húsfreyjan - 01.04.1964, Side 39
því, að tekin var upp danskennsla fyrir skólabörn- in, fyrir 6 árum, og hefur sú kennsla haldist síðan, og oft hefur félagið sent frá sér hvalningarorð um hreinsun lóða í kring nm hús. Þá hefur það reynt að liafa áhrif á skemnitanalíf unglinga í sveitinni, m. a. með því að lialda ekki opinbera dansleiki á sínuin vegum í félagsheimilinu s.-l. 7 ár. Félagið er aðili að Skógræktarfélagi Mosfellslirepps, Æsku- lýðsráði Mosfellshrepps, er einn af eigendum félags- heimilisins Hlégarðs og á fulltrúa í stjórn þess, einnig á félagið fulltrúa í undirbúningsnefnd fyrir 17. júní liálíðarkvöld. Vegna þátttöku sinnar í Æskulýðsráðinu hefur félagið getað komið því til Ieiðar, að haldnir eru loka'öir dansleikir fyrir æsku- fólk sveitarinnar. Má með sanni segja, að vegna að- stöðu sinnar gæti áhrifa Kvenfélagsins mjög víða í félagsstarfi innansveitar. Á seinni árum Iiefur félagið æ meir látið skóla- og uppeldismál lil sín taka. Eru þau oft rædd á fund- um og þá gjarnan sendar ályklanir og lillögur varð- andi þau. Að Varmá hefur nýlega verið reist glæsi- legt skólaliús fyrir barnaskólann og á s. 1. vetri var stofnaður unglingaskóli að Brúarlandi. Hefur Kven- félagið fylgzt af áhuga með þessum framförum og glaðst innilega yfir þeim. Nú í vetur gaf félagið kvikmyndasýningarvél af fullkomnuslu gerð til skólanna og tveim áruin áður gaf það nærri kr. 200.000,00 til sundlaugar skólanna. Fyrir nokkrum árum gaf félagið kr. 20.000,00 til íþróttavallar Ung- mennafélagsins. Kirkju sinni að Lágafelli befur félagið ávallt sýnt tryggð og sóma. Á 75 ára afmæli hennar í febrúar s.l. gaf það dýrindis hátíðaliökul. Áður hefur það gefið kirkjunni m. a. skírnarfont, fermingarkyrtla, kr. 43.000,00 til orgelkaupa og sérbikara lil þess að nota við altarisgöngur. Sérstiik kirkjugarðsnefnd er starfandi innan félagsins, sem gegnir því hlutverki, að fegra og snyrta umliverfis kirkjuna. Námskeiðahald hefur vcrið snar þáttur í starfi félagsins og liafa á síðustu árum verið lialdin sauma- námskeið tvisvar á ári, ennfremur haldin sérstök námskeið i sundi, í leikfimi, i afslöppun, í bjálp í viðlögum auk matreiðslunámskeiða, fiindurnám- skeiða og hannyrðanámskeiða. Þá bafa verið haldn- ir fyrirlestrar um margvísleg efni og einu sinni veitt tilsögn í snyrtingu og klæðaburði. Hafa námskeið- in verið ýinist á vegurn sýslusambandsins eða félag- ið staðið fyrir þeim sjálft. Er mikil bót að því, að K. í. skuli vera farið að veita styrki út á námskeið, er félögin standa fyrir sjálf heima fyrir, en um leið mjög leitt, að sambandið skuli elcki geta lialdið uppi skipulagðri íáðunaulaþjónustu eins og til stóð. Að- staða til námskeiðahalds og félagsstarfa almennt er mjög góð bjá okkur, þar sem hið ágæta félagslieim- ili Hlégarður er ævinlega til reiðu. Líknarmálin eru ávalll á dagskrá. Hefur stjórnin sérstakan sjóð lil ráðstöfunar í því skyni að veita bágstöddmn stuðning, bæði styrlc vegna veikinda- tilfella og í sambandi við önnur áföll. Einnig styrkir félagið á hverju sumri nokkrar konur til húsmæðra- orlofs. Þessi glaðnings- og góðgerðarstarfsemi fer ávallt fram í kyrrþey og er aldrei rædd á fundum. Almennir málfundir eru haldnir einu sinni í mán- uði og er fyrsti fimmtudagur inánaðarins fastur fundardagur. Síðasti fundur vetrarins er aðalfundur. Hver fundur byrjar og endar með sameiginlegum söng. Á fundum er margt rætt eins og gefur að skilja og ekkert mál afgreitt nema búið sé að ræða það rækilega. Þá er á hverjum fundi séð fyrir skemmtiefni, sein konurnar leggja lil sjálfar —- lesa þá gjarnan upp sögur eða kvæði. Þykir það ágæt upplyfting. Að loknuin fundi drekka fundarkonur kaffi saman. Fræðsluinyndir eru oft sýndar á fund- uin. Sérstakir fræðslu- og skemmlifundir eru stund- um haldnir og utanfélagskonur þá verið velkoinnar til þess að gefa þeim kost á að kynnast starfsemi félagsins. Fundarsókn er allsæmileg, þegar tekið er lillit til þess, að mikill Iduti félagskvenna eru ung- ar konur, sem af skiljanlegum ástæðum eru meira bundnar lieima en þær eldri. Ilér má geta þess, að félagið hefur keypt „Húsfreyjuna“ s.l. 8 ár fyrir alla meðlimi sína. Les því hver einasta kona blaðið. Er það mikil uppörvun fyrir félagslífið og skerpir fé- lagsvitundina gagnvart öðrum kvenfélögum. Skora ég hér ineð á fleiri félög að fara að fordæmi Kven- íélags Lágafellssóknar í þessu efni. Leiklist liefur lítið verið stunduð á seinni árum, en var töluverð liér áður fyrr. Viðhorf og aðstæður liafa mikið breytzt á síðustu áralugum. Við búum á þrepskildi borgar og sveitar. Samkeppuin er ströng, hvað skcmnitanalífið snertir, borgin togar fast í sveitarfólkið og hefur oftasl belur. Skemnitiferð er farin á bverju sumri og að vetri cr farin sameiginleg leikhúsferð. Hópferð til lit- landa liefur verið niikið rædd iiiidanfarið og var stofnaður sérstakur sjóður tii slikrar ferðar. Hefur áliugi verið mikill fyrir utanferðuin til fróðleiks og kynningar og er þess skeinmst að minnast, þegar 12 konur r Kvenfélagi Lágafellssóknar fóru á Norræna Húsmæðraþingið á Nyborg Strand í Danmörku sumarið 1956. Þótl margt liafi verið gert í þessi 54 ár, sem fé- lagið liefur starfað' og stefnan alltaf vcrið sú sama í grundvallaratriðum, þá mun hin öra framþróun í þjóðlífinu æ skapa ný og ný verkcfni. Og eilt er víst, að fjölmenn og samtaka kvenfélög mega sín mikils í því mikla og markvissa slarfi sem framund- an er. Hinar nicrku og margþættu framtiðaráætlanir urn starfsemi K. I., sem gerðar voru ó 15. Landsþingi þess, og við liöfum allar kynnt okkur, inega sín lítils ef ekki stendur að baki þeim sterkur liðsafli til að framkvæma þær. Öll félög innan vébanda K. I. þurfa að gera sitt, livert og eitt, og öll saman, til þess, að þessi óætlun geti orðið að veruleika. Ekki skyltli gleymt að geta þess liér, að Kvenfé- lag Lágafellssóknar á marga velunnara, sem liafa stutt það og lagt niáluni þess lið. Oft liefur það koin- ið fyrir að vinir utan félags sem innan, liafa gefið HÚSPREYJAN 37

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.