Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 5
Husfreyjjari
Reykjavík
apríl-júní 1968
Útgefandi: Kvenfélagasamband íslands
2. tölublað
19. árgangur
Á rökstólum
SigríSur Thorlacius Freyja Nordahl Hallveig Arnalds Svava Jakobsdóttir
Eiga kvenfélög rétt á sér?
Að Jjví er ég bczt veit, J)á varð' Húsfreyjan fyrst
rita á íslandi til J>ess að' fá lítinn hóp til að ræð-
ast við um ákveðið efni og liafa umræðurnar hirzt
undir hinu sameiginlega lieiti: Á rökstólum. Fyrsti
Jtátturinn hirtist fyrir réttum sex árum í 2. hefti
13. árgangs. Alls hafa sex þættir verið gerðir mcð
J)essum hætti og sá sjöundi var þannig unninn, að
konum víð's vegar um land voru sendar spurn-
ingar, senr ]>ær svöruðu skriflega.
Nú hefjum við enn rökstólaþátt. Þá ræðast við
Freyja Nordahl, formaður Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu, Svava Jakobsdóttir,
ritliöfundur, Hallveig Arnalds, kennari og Sig-
ríður Thorlacius.
S. T. I upphafi þessa spjalls ætla ég að
biðja ykkur að svara þessari spurningu:'
Teljið þið að kvenfélög eigi rétt á sér í nú-
tíma þjóðfélagi?
S. J. Ég vil fyrst taka fram, að ég tel
okkar þjóðfélag alls ekki vera raunveru-
legt nútímaþjóðfélag m. a. vegna þess, að
við höldum enn í verkaskiptingu, sem hið
.gamla bændaþjóðfélag byggðist á, en á
engan rétt á sér í nútímanum. óeðlileg
verkaskipting milli kynjanna helzt við
vegna þrýstings, sem að leggst á öllum stig-
um þjóðfélagsins og hefst strax á verklega
náminu í barnaskólunum, þar sem drengj-
um og stúlkum er fyrirfram ætlað að læra
sína greinina hverjum — stúlkunum sauma
og. matreiðslu, drengjunum smíðar o.s.frv.
t því þjóðfélagi framtíðarinnar, sem ég sé
í hyllingum, tel ég að kvenfélög muni
verða óþörf og ég tel það óæskilegt, að
ástandið skuli kalla á að konur séu í sér-
félögum.
F. N. Þetta er bein spurning og ég svara
því afdráttarlaust, að kvenfélög eigi rétt á
sér, eins og ástandið er nú. Ég styð þá full-
yrðingu með þeim rökum, að sameining
HÚSFRETJAN
1