Húsfreyjan - 01.04.1968, Side 36

Húsfreyjan - 01.04.1968, Side 36
Ég er bara tieimilisfaðir Eftir Folke Barker Jörgensen Höfundurinn er kennari og kona hans einnig. Þau eiga fjögur börn og þegar að því kom að annaðhvort þeirra varð að vera heirna til að gœta barnanna, þá vildi hann heldur verða heimilisfaðir og annast hússtörfin, á meðan eiginkonan sinnti kennslu. Þegar von var á fjórða barninu okkar kom okkur saman um, að ég gæti verið heima og gætt þess á meðan konan mín væri að kenna. Ég var þá búinn að vera heimavið á annað ár, án þess þó að vera jafn bund- inn og sá, sem ungbarns gætir. Okkur þótti það fyrirkomulag ágætt. Mér þykir vænt uin lítil börn og kann orðið lagið á þeiin, svo það var mér engin ofraun að annast þau. Mér veittist ósköp létt að framreiða síðdegiste lianda liinu lieimafólkinu þeg- ar það kom þreytt lieim úr skólanum. Nú er yngsti krakkinn að verða fjögurra ára og við vorum svo heppin, að koma honum í leikskóla fyrrihluta dags. Þau eldri eru orðin svo stór og skynsöm, að þau geta ekki einasta séð um sig sjálf, heldur líka gætt litla hróður, ef okkur hjónunum dettur í hug að vera samtímis að heiman. Við erum ekki nærri því eins bundin og við vorum áður, en samt hef ég ekki viljað taka að mér nema um tíu tíma kennslu á viku. Þá lief ég eftir sem áður tíma til að sinna fjölskyldu minni. Ég vil taka þátt í daglegu heimilislífi, ekki bara koma heim á matmálstímum og þegar sjón- varpið hefst. Ég matreiði, bæði skólanestið á morgnana, sem ér nú liálf leiðinlegt — 14 rúgbrauðssneiðar með áleggi — og kvöldmatinn, sein er óneitanlega skennnti- legri. Ég get ekki hugsað mér að vera án eldhússins. Aftur á móti sér konan mín um lín og fatnað, saumar, þvær o. s. frv. Hún ber líka megin ábyrgð á hreingerningu og skóburstun. Ég rek nagla og geri við raf- magn, hún passar garðinn, en notar mig í erfiðustu verkin. Uppþvottin sjáum við um eftir samkomulagi, ef við ekki horg- um krökkunum fyrir hann. Eiginlega vinn- ur hvorugt okkar nokkurt starf, sem okk- ur leiðist, nema að hella úr ruslafötunni. Konunni minni fellur vel að þvo í sam- 32 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.