Húsfreyjan - 01.04.1968, Síða 38
L-ö<£piœðí
saanan
nqu/i
Hvers þurfa konur aS gœta viS hjóna-
skilnáS?
Spurningu þessa lief ég skilið svo, að spurt
sé um það, livað helzt þurfi lögum sam-
kvæmt að taka ákvörðun um, við Iijóna-
skilnað. En ekki er það sérstaklega miðað
við konur, heldur li jón almennt.
ForrœSi barna.
1 fyrsta lagi þá verður að taka ákvörðun
um það hvort hjóna skuli liafa forræði
barns eða barna, en við hjónaskilnað skal
forræði hvers barns vera óskipt hjá öðru
forehlri. Komi hjón sér saman um það
hvort lijóna skuli hafa forræði barns eða
barna, ellegar verði samkomulag um það,
að hjónin skipti með sér börnum sínum,
þá myndi sú ákvörðun hjónanna standa,
nema bersýnilegt væri að sú ákvörðun væri
barni eða börnum óheppileg. Verði ekki
samkomulag með hjónum um þetta atriði
þá ákvarðar yfirvald hversu skuli fara um
forræði barna og skal við þá ákvörðun líta
til þess sem telja má börnunum lxeppileg-
ast. Venjulegast mun vera að þá sé konu
úrskurðað forræði barna og jafnframt að
láta forræði allra barna ef fleiri eru vera
hjá sama foreldri.
Báðir foreldrar eru framfæruskyldir
með börnum sínum og verður því þegar
34
ákvörðun hefur verið tekin um það, hvort
hjóna skuli hafa forræði barna, að taka
ákvörðun um meðlagsgreiðslur með börn-
um. Barnsmeðlag eins og það er ákvarðað
af Tryggingarstofnun ríkisins á hverjum
tíma er lágmarksmeðlag. Reyndar getur
það foreldri, sem fær forræði barns eða
barna afsalað sér meðlagsgreiðslu með
bömum þeim sem hjá því eru. En krefjist
það foreldri, sem forræði barna liefur,
meðlagsgreiðslu, þá er liitt foreldrið fram-
færsluskylt. Það foreldri, sem barn eða
börn hefur, getur fengið barnsmeðlögin
greidd í gegnum Tryggingastofnun ríkis-
ins, sem svo aftur innheimtir meðlögin hjá
hinu framfærsluskyhla foreldri. Þó er á
það að líta, að Tryggingastofnun ríkisins
greiðir einungis meðalbarnsmeðlag eins og
það er ákveðið á hverjum tíma. Hafi orð-
ið samkomulag með foreldrum um hærri
meðlagsgreiðslu verður að innheimta það
sem er fram yfir meðalmeðlag með öðr-
um hætti.
Eignaskipti.
Við hjónaskilnað skal skipta eignum fé-
lagsbús hjóna. Sé kaupmáli með hjónum
er farið eftir ákvæðum hans, að því sem
liann tekur til, við búskiptin. Sé ekki um
kaupmála að ræða, þá er ahnenna reglan
sú, að eignum búsins og skuhlum skuli
HÚSFREYJAN