Húsfreyjan - 01.04.1968, Side 39
skipt til helminga. En sé um það sam-
komulag með hjónum, þá geta þau skipt
eins og þeim sjálfum sýnist. Algengt er
t. d. að liafi kona forræði barna, þá fái hún
jafnframt innbú hjónanna, þótt svo að það
sé meira en helmingur eigna búsins. Einn-
ig er nokkuð algengt eigi hjón íbúð og
konan hafi forræði barna, þá fái hún íbúð-
ina, þótt svo að íbúðin sé aðal eign búsins.
En slíkar ráðstafanir byggjast á samkomu-
lagi aðila, en ekki á lagafyrirmælum. Þó
eru í lögum ákvæði um að sá, sem krefst
skilnaðar, geti krafizt innanstokksmuna,
vinnuáhalda o. fl., enda þótt það fari fram
úr búsliluta lians, en þó því aðeins, að
ætla megi að liann meyi ekki án þeirra
vera til heimilishalds. Enda sé skilnaður
ekki þeim aðila að kenna.
Lífeyrir.
Við skilnað skal ákveða livort og að hve
miklu leyti annað lijóna skuli framfæra
hitt. Framfærslueyri skal miða við það,
hvað ætla megi að framfærsluþegi geti afl-
að sér sjálfur og hins vegar við það, livað
ætla megi hitt hjóna aflögufært um.
Eins og sjá má á þessu er ekkert því til
fyrirstöðu við hjónaskilnað, að kona verði
skyhluö til að greiða manni sínum lífeyri,
en það er víst mjög fátítt og veit ég engin
dæmi um slíkt. Aftur á móti er það rnjög
algengt, að kona fái frá manni sínum líf-
eyri í eitt ár frá útgáfu leyfisbréfs til skiln-
aðar að borði og sæng. I öðrum tilfellum
er ákveðið að lífeyrir þessi skuli greiddur
á meðan skilnaður að horði og sæng stend-
ur. 1 einstöku tilfelluin er lífeyrir greidd-
ur eftir lögskilnað, en ef slíkt byggist ekki
á samkomulagi aðila, þá þarf að standa
alveg sérstaklega á til þess að öðru lijóna
sé úrskurðaður lífeyrir úr hendi liins eftir
lögskilnað. Þær fjárliæðir, sem konur fá
greiddar sem lífeyri frá mönnum sínum
við skilnað eru ákaflega mismunandi og
virðist það mest fara eftir efnahag eigin-
manna. Verði ekki samkomulag með hjón-
um um lífeyrisgreiðslur úrskurðar dóms-
málaráðuneytið um það. En í mörgum
lijónaskilnaðarmálum er ekki um lífeyris-
greiðslur til konu að ræða, þar sem konur
gera ekki kröfu til lífeyris.
Hafi fólk, vegna væntanlegs skilnaðar
hvort lieldur er skilnaðar að borði og sæng
ellegar lögskilnaðar, komið sér saman um
eignaskipti, framfærslu barna ellegar
framfærslu annars hjóna á liinu, þá getur
það lijóna, er þykir hallað á sig stefnt hinu
fyrir dóm og dómurinn hrundið sariiningn-
um, ef hann er bersýnilega ósanngjarn,
enda sé mál höfðað' innan sex mánaða frá
skilnaði.
ErfSir.
Erfðaréttur milli lijóna fellur niður við
skilnað að horði og sæng og við lögskilnað.
Eftirlaun.
I lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna rík-
isins eru ákvæði um það, að þegar sjóðs-
félagi deyr, sem verið hefur tvígiftur og
lætur eftir sig tvo maka á lífi, skiptist
makalífeyririnn milli þeirra á beinu lilut-
falli við þann tíma, sem hvor þeirra hef-
ur verið giftur hinum látna sjóðsfélaga, á
þeim tíma, er liann ávann sér lífeyrisrétt-
indi. Sama gildir hafi sjóðsfélagi verið
giftur oftar en tvisvar.
AuSur Þorbergsdóttir
HÚSFREYJAN
35