Húsfreyjan - 01.04.1968, Side 44
úr ýmsum áttum
Þorger&ur Sigurgeirsdóttir:
Kvennasamtökin í Kópavogi
Stjórn Kvenjélagasumbanth Kópavogs. TaliS frá vinstri: Kristín ísleifsdóttir, SigríSur Gídadótlir, I'or-
gerður Sigurgeirsdóttir.
Þann 9. febrúar 1967 var formlega gengið
frá stofnim Kvenfélagasambands Kópa-
vogs. Að sambandinu standa öll kvenfé-
lögin í bænum, en þau eru 3: Sjálfstæðis-
félagið Edda, Freyja, félag framsóknar-
kvenna og Kvenfélag Kópavogs, með sam-
tals 350 meðlimi.
Kvenfélögin hafa starfað með miklum
blóma undanfarin ár, enda nóg að starfa
í bæ, sem byggist svo hratt upp eins og
hefur verið með Kópavog.
Það er merkur áfangi í okkar augum, að
þetta samband var stofnað, og gaman að
félögin í bænum skuli hafa áhuga á að
vinna saman, sérstaklega þegar miðað er
við að þarna eiga hlut að máli tvö stjórn-
málafélög og eitt lilutlaust um stjórnmál.
Stjórn sambandsins skipa nú þessar kon-
ur:
Þorgerður Sigurgeirsdóltir forinaður
Kristín Isleifsdóttir ritari
Sigríður Gísladóttir gjaldkeri
og til vara:
Hólmfríður Gestsdóttir varaformaður
Stefanía Stefánsdóttir
Ágústa Björnsdóttir
Ég ætla nú að kynna félögin hvert fyrir
sig með því að gefa formönnunum tæki-
færi til þess að segja lítillega hver frá sínu
félagi.
40
HÚSFREYJAN