Vera - 01.12.1982, Page 3

Vera - 01.12.1982, Page 3
VERA „Bréf“ Hótel Vík Reykjavík v Kœra VERA! Eg vil óska þér til hamingju með fyrstu tvö tölublöðin og vil lýsa ánægju minni með þau. Eg held að svona blað eigi fullan rétt á sér og hafi vantað lengi eitthvað blað fyrir konursem er raunverulega fyrirþœr en ekki uppskrift á því hvernig konur eigi að vera eins og mér finnst mörg þessara kvenna- blaða. En það er einn hlutur sem mér finnst vanta í blaðið og vil leita álits þíns á því. Finnst þér asnalegt að hafa einhverjar mataruppskrifdr í VERU? Pað kemur ,,andkvenréttindalega“ út að hafa svoleiðis í svona blaði. Ég er nefnilega frekar lélegur kokkur og ansi hreint hugmyndasnauð þeg- ar kemur að því að ákveða hvað á að vera í matinn. Ég tala nú ekki um ef ég á von á gestum, þá fer núfyrst allt ísteik! Vœri ekki hœgt að hafa einhverjar sniðugar uppskrift- ir í hverju blaði, t. d. einfaldan matseðil ef von er á fólki í mat, eða fljótlegán rétt í kvöldmatinn? Segðu mér hvað þér finnst um þetta má, ég er viss um að það eru fleiri konttr ett ég sem myndu taka svona þætti með þökkttm. Gangi ykkur allt í haginn, ÞA Takk fyrir bréfið! Okkur líst stórvel á þessa uppástungu þína og finnst hún ekki and- kvenréttindaleg að neinu leyti. Við fjöllum einmitt um nýútkomna matreiðslubók eftir Jóhönnu Sveinsdóttur í þesstt blaði, og það væri mjög gaman að halda þessu efni meira á lofti framvegis. Við bíðum spenntar eftir að uppskriftirnar komi í löngum bunum og hvetjum aila sem luma á einhverju sniðugu að senda VERU það sem allra fyrst... Ritnefnd JoZ-/VBAUU \ h clcUw'^JóUbcUJ- - cz— T3c>r& — í+wxasuucLs, fd' /5"30J)£Veinarrtif k?c,/rtfr\ Korvujrþjé' // KÖLLUM PÁ FÓSTRA ... Anna Sigurðardóttir hringdi til okkar vegna lesendabréfs Elínar V. Ólafsdóttur, sem birtist í I. tbl. VERU og fjallaði um karlkyns og kvenkyns starfsheiti. Elín benti m. a. á að nafni Fósmiskólans Itafi verið breytt í Fóstnrskóla dl að gera hann að- gengilegan karlmönnum. í framhaldi af því kom ttpp hugmynd um að kalla fóstrur fóst- urfrœðinga, svo karlmenn gœtu fallið undir starfsheitið. I bréfinu veltir Elín því fyrir sér hvers vegna karlmenn geti ekki borið kven- kyns starfsheitið fóstra, á sama hátt og kvenmenn beri t. d. starfsheitið kennari. Anna benti á að heitið fóstri komifyrir í Islendingasögunum og má þar t. d. nefna Pórð Leysingjason, sem fóstraði alla sontt Njáls og Bergþóru og Þjóstólf fóstra Hall- gerðar langbrókar. Er þvísjálfsagt að nefna karlmann sem menntast í Fósturskólanum því gamla og góða nafni fóstri. Sagði Anna að til þessa hefðu fóstrar ekki verið kven- kenndir og væri óþarft að byrja á því á , fafnréttistímum “. Kœru lesendur! Frá og með þessu tölublaði verður hún Vera okkar í þessari stcerð. Vonandi takið þið henni vel, þótt hún sé ofurlítið minni um sig — munum að það er inn- rætið sem blífur! Við Veru konur teljum okkur mega vera ánægðar með þœr viðtökur sem blaðið hefur fengið — áskrifendum fjölgar jafnt og þétt og viðbrögð þeirra, sem hafa látið í sér heyra, eru já- kvœð. Aldrei verður ofoft á það minnt að Vera er hugsað sem kvennablað — blað allra kvenna, en til þess að svo megi verða, þurfa sem flestar að taka þátt. Látið í ykkur heyra, skrifið, hringið, skammið okkur eða hælið — munið bara að við hvorki viljum né getum án ykkar verið. Með kœrri kveðju, ritnefndin.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.