Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 9

Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 9
Jólaskemmtun Ég var álfaprinsessa kjóllinn minn var hvítur og saumuð á hann pappírsblóm álfaprinsinn kyssti mig og bauð mér sæti við hlið sér áhorfendur klöppuðu og við hneigðum okkur áðuren tjaldið féll seinna vildi álfaprinsinn kyssa mig í húsasundi og fékk að launum kinnhest sem allur bekkurinn hló að. Ingibjörg Haraldsdóttir „Þangað vil égfljúga", 1974 Fyrir jól Jólin eru að koma, ljósaperur í grænu greni yfir Austurstræti, milli sölubúða. í Hlíðarvagninum syngur litli snáðinn vísurnar um jólasveinana, en konurnar drúpa höfði yfir böggla sína, jólagjafir handa vinum, lifandi og dánum. Það er ekkert ljós í hjörtum kvennanna, jólabarnið á þar ekki rúm og jötuna munt þú hvergi finna. Það er ótti og myrkur í hjörtum þeirra ótti við dýrt smjör og vonda stjórn. En á jólunum verður bjart í hjörtum og myrkrið sefur í undirdjúpunum. Guðrún Guðjónsdóttir „Opnir Gluggar", 1976

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.