Vera - 01.12.1982, Qupperneq 32
frekar um að keyra sig en að gera það sjálf þcgar hún þurfti að fara
eitthvað.
Af þessu spratt líka enn geigvænlegri ótti: að hún brotnaði nið-
ur, yrði brjáluð og sett á geðveikrahæli. „Eftir því sem þessi undar-
lega tilfinning óx fór ég æ oftar að spyrja sjálfa mig, „Hvað gcturðu
haldið þetta lengi út? Hvað þarf mikið til að gera eina manneskju
vitlausa?“ Francine hafði aldrei þekkt neinn sem fengið hafði
taugaáfall. Hún fór á bókasafnið og fletti upp sjúkdómseinkenn-
unum. Hún fann lýsingar sem áttu svo fullkomlega viö hana að hún
varð enn hræddari en fyrr: þunglyndi, ástæðulaus grátköst, kvíði,
taugaóstyrkur, ótti við fólk. Hún sá sjálfa sig fyrir sér þar sem hún
var læst inni á geöveikrahæli með rimlum fyrir gluggunum og hugs-
aði með sér, „Frekar vildi ég vera dauð!“
Hún varð að berjast gegn sjálfsmorðstilhneigingum sínum: „Ég
var svo Iangt niðri að mér fannst að dauðinn einn mundi veita mér
frið. Innri rödd sagði, „Ef þú drepur þig þá er þessu lokið. Pá
þarftu ekki að lifa svona dag eftir dag.“ “
Francine komst að því að hún gat haft sig upp úr þunglyndinu
með því að tala við sjálfa sig. „Ég lokaði mig inni á baði og sagði,
„Fran, þú hefur svo margt til að lifa fyrir.“ Ég hugsaði um börnin
mín, hvert og eitt, Christy, Jimmy, Dana, Nicole, hvað þau þurftu
mikið á mér að halda, hvað þau elskuðu mig og ég elskaði þau. Ég
horfði út um gluggann og sagði, „Hugsaðu um allt það sem þú
getur verið þakklát fyrir, jafnvel þótt það sé bara eitthvað mjög
venjulegt. Himinninn er blár. í dag eru skýin hvít. Eru þau ekki
falleg? Er heimurinn ekki fagur? Guð hefur skapað þetta: blómin,
börnin, himininn, skýin.“ Smám saman gat ég ýtt kvíðanum burtu.
Ég hugsaði um hvað ég ætlaði að setja niður í garðinn eða hvernig
ég ætlaði að hafa nýju gardínurnar. Ég vann mín verk, tók til í
húsinu eða hvað það nú var og hélt fast í þessar góðu hugsanir. Ef
Mickey sat í stólnum sínum í stofunni og drakk bjór þá leit ég ekki
á hann þegar ég gekk fram hjá. Pað var eins og hann væri ekki
þarna.“
Á þennan hátt tókst Francine að þrauka enn einn dag, enn eina
viku, enn einn mánuð með Mickey en hún vissi að hún var að
missa fótfestuna. í hvert skipti sem Mickey réðst á hana, með
orðum eða barsmíðum, fann hún hvernig hún sökk eilítið dýpra.
Þegar hún horfði á sig í speglinum sá hún gamla skrukku. „Ég var
tuttugu og sjö ára en leit út fyrir að vera fimmtug. Og ég fór að
velta fyrir mér hve lengi ég gæti haldið þctta út, hve lengi ég gæti
haldið áfram að lifa svona lífi. Einu sinni hugsaði ég með mér,
„Fran þú getur haldið svona áfram þangað til þú klikkast eða þú
gerir eitthvað í málinu. Hvort ætlarðu að gera?“
Pegar hún horfði um öxl sá Francine mest eftir því að hafa hætt í
skóla án þess að taka lokapróf. Þar höfðu orðiö þáttaskil í lífi
hennar og eftir það versnaði allt. Dag einn tók hún cftir auglýsingu
í blaði um ókeypis fullorðinsfræðslu fyrir þá sem hætt höfðu í
skóla. Hún lék sér að hugmyndinni í nokkra daga og safnaði kjarki
til að hringja í númerið sem gefið var upp í auglýsingunni. Henni
var sagt að hún hefði nægileg réttindi og ef hún lyki náminu fengi
hún próf sem samsvaraði stúdentsprófi. Þótt Mickey hamraði á því
hvað hún væri heimsk — það var eitt af uppáhalds skammaryrðum
hans — þangaö til hún var nærri farin að trúa honum minntist
Francine þess að hún hafði áður fyrr trúað því að hún væri greind.
Hún hafði engin ákveðin áform í huga um það hvernig hún ætlaði
að nota þetta próf en það var einstaklega freistandi. Spurningin
var hvort Mickey myndi leyfa henni að láta innrita sig.
Hún færði máliö í tal einn morguninn þegar hann var allsgáður
og í góðu skapi. „Pú getur gert það ef þú vilt,“ sagði hann og yppti
öxlum, „en þú klárar þetta aldrei. Pú ert svo heimsk.“
„Ja, ég ætla nú samt að reyna. Tímarnir eru bara í tvo klukku-
tíma á morgnana, ég gæti farið með krakkana í skólann og verið
komin heim áður en að Dana kemur.“
„Hvað ætlarðu að gera við Nicky?“
„Ég gæti tekið hana með mér. Við megum það og það er sér-
stakt herbergi fyrir krakkana til að leika sér.“
Mickey hugsaöi sig um. Francine sá að hann hikaði.
„Gerðu það, Mickey. Ef ég næ þessu prófi get ég fengið vel
borgaða vinnu. Þá gæti ég fengið mér einhverja starfsmenntun.
Kannastu ekki við þessar auglýsingar í blöðunum: Góð staða í
boði fyrir stúdent!“
Mickey samþykkti með semingi. „Farðu bara,“ sagði hann, „en
þú klárar þetta aldrei. Ég þori að veðja að þú getur það ekki.“
Þegar hann sagði þetta svaraði hljóð rödd innra með Francine,
„Jú, ég skal!“
Viö óskum viöskiptavinum okkar jóia og farsældar á nýju ári.
Þökkum viöskiptin
RAFHA Austurveri
RAFHA Hafnarfirði
HUSGAGNAVERSLUN
GUÐMUNDAR
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
ALÞYÐUBANKINN
Laugavegi 31
Suðurlandsbraut 30
i
VEITINGAHUSIÐ
TORFAN
Amtmannsstíg 1
SMJORLIKI H.F.
Þverholti 19
VERSLUNIN
FRÍÐA FRÆNKA
Ingólfsstræti 6
ó
INGAR OG GYLFI
Grensásvegi 3
FIDO
LEIKFANGAVERSLUN
Iðnaðarhúsinu
KVENFELAGSSAMBAND
ÍSLANDS
Hallveigarstöðum