Vera - 01.12.1982, Page 35

Vera - 01.12.1982, Page 35
BÆKUR Marie Cardinal: Lausnarorð Iðunn, 1982. Oft hef ég eftir lestur sjálfsævisagna karla hugsað eitthvað á þessa leið: Fyndið þætti mér að sjá sögu eftir konu skrifaða á þennan hátt. Ævisögu þar sem fjölskyldan, maki og börn, koma bara við sögu í auka- setningum; þau eru aukaatriði sem ekki koma „raunverulegu" lífi höfundar við, því „raunverulegt" líf er alls staðar annars- staðar en heima hjá honum. Svona gæti sem betur fer engin kona skrifað, hef ég hugsað, stolt og ánægð með kynsystur mín- ar í rithöfundastétt. Nú er komin út bók á íslensku eftir kyn- systur mína franska, bók sem að öllum lík- indum fer mjög nálægt því að vera sjálfs- ævisaga, en í henni er einmitt þetta gert. Aðalpersónan í „Lausnarorðinu" eftir Marie Cardinal er þriggja barna móðir, ein- stæð á köflum, en gift og mjög háð manni sínuin sem býr stundum heima og stundum ekki. Börnin og maðurinn eru aukaatriði í sögunni. Hér er þaö konan sjálf, „ég“ bók- arinnar, hennar líðan og vanlíðan, þroski og stöönun sem skipta öllu máli. Þetta er hér meðvituð aðferö sem hefur ákveðið markmið (sem mér hefur ekki fundist vera í sjálfsævisögulegum ritum eftir karla. Þær einkennast oft á tíðum af ákveðnu, dálítið sjúku verðmætamati). Marie Cardinal lætur aðalpersónu sína rífa sig lausa úr þeim böndum sem hin hefðbundna móðir og eiginkona er hnýtt fjölskyldu sinni til þess að bjarga sér, og ef til vill því fólki sem henni þykir vænst um, frá andlegri tortím- ingu. Aðferðin undirstrikar eitt ntegin við- fangsefni bókarinnar: Verðmætamat og viðhorf mannkynsins eru ónothæf eins og þau tíðkast í þjóðfélaginu í dag. Viö þurf- um að rífa þau niöur og byggja á einhverju algjörlega nýju, til þess að verða hæf til að halda áfram að lifa og viðhalda mannkyn- inu. Börn aðalpersónunnar koma þess vegna ekkert við sögu fyrr en hún er reiðu- búin að umgangast þau sem liíandi vera, vera sem er búin að gera upp við viðhorf sem umhverfi hennar hefur troðið upp á hana. Það er erfitt að endurskoöa viðhorf og verðmætamat sem eru almennt álitin vera Stóri Sannleikur og hafin yfir alla gagnrýni. Hér finnst mér eðlilegt að bæta við, þó svo að það sé kannski ekki í beinu samhengi viö það sem er til untræðu, að það er einmitt af þessari sömu ástæðu sem kvennahreyfingar hafa útilokað karlmenn. Konur sem hafa sett sér þaö markmið að endurskoða í grundvallaratriðum þann hugmyndaheim sent þær búa við, hafa ekki efni, tíma né orku til þess að reyna sam- tímis að sannfæra karlmenn um réttmæti hugntynda sinna, því þeir byggja sitt upp- gjör við kerfið yfirleitt á allt öðrum for- sendum. Það er algjör forsenda þess að eitthvað frjótt komi út úr slíkri endurskoð- un að hægt sé að útiloka sig frá þeim hugs- unarhætti sem kúgunarmunstrið byggist á. Bókin er viðamikil og tekur fyrir of margar hliðar mannlífsins til að hægt sé að gera grein fyrir þeim öllum í stuttri um- fjöllun. Sálsjúk kona fer í könnunarleið- angur niður í hyldýpi sálar sinnar og grefur upp margt merkilegt, bæði skít og gersem- ar. Hún fyllist barnslegri undrun við hvern nýjan fund. Það er kannski þessi hrein- skilna undrun og óþreyja eftir að konta þessum nýfundna sannleika sínum á fram- færi við lesendur sem gerir söguna bæði grípandi og trúverðuga. Hér er ekki á ferð- inni predikari sem vill leiða fáfróða lesend- ur sína í allan sannleika, heldur leitandi manneskja sem gefur okkur kost á að vera með í rannsóknarleiðangrinum. Söguþráðurinn er í stuttu máli þessi: Aðalpersóna bókarinnar er kona á fertugs- aldri, sem er orðin svo alvarlega sinnissjúk, að umhverfi hennar neyðist til að taka mark á henni. Hún fer í sálgreiningu og meðhöndlunin tekur sjö ár. í samtölum sín- um við lækni sinn rifjar hún upp kafla úr bernsku sinni og æsku og smám saman fer hún að koma auga á, skilja og skilgreina allt það kúgunarmunstur sem hún hefur búið við og stuölað hefur að sjúkdómi hennar, sem hún kallar veiluna. Hún er af franskri góðborgaraætt, alin upp í Alsír. Foreldrar hennar skilja þegar hún er kornabarn, og hún er alin upp í umsjá móður sinnar og ættfólks hennar. Henni er innrætt menning, smekkur, for- dómar, mál og trú þeirrar stéttar sem hún elst upp í. Sálgreiningin hjálpar henni að skilja, að veruleiki sá sem hún lifir og hrærist í er spilaborg byggð á lygum og verðmætamati sem eru henni í raun og veru einskis virði. Henni verður smám saman ljóst hvernig kynjamunstrið hefur mótað hana og bælt. Hún var uppreisnargjarn krakki sem þrjóskast lengi við að láta forma sig eítir einhverri fyrirmynd sem hentaði henni ekki, og þjónaði engum til- gangi öðrum en að viðhalda „spilaborg- intú". En enginn má við margnum til lengdar, öll uppreisn er bæld niður. í stöð- ugri leit barnsins að ástúð og hlýju reynir hún að uppfylla þær væntingar sem hún finnur að eru gerðar til hennar, og verður smátt og smátt, að minnsta kosti á yfir- borðinu, regluleg fyrirmyndarstúlka sem móðirin og ættin öll getur verið stolt af. Sjálfsmynd barnsins fær aldrei tækifæri til þess að þroskast, í staðinn er henni gefið heilt hugmyndakerfi. Hún lærir hvað er góður smekkur og vondur, hvað sæmir ungri stúlku af hennar stétt í öllum mögu- legum og ómögulegum tilvikum. Tungumál hennar er svo sneisafullt af bannorðum að hún getur ekki tjáð nema hluta af þeim veruleika sem hún lifir í. Persónuleiki hennar drukknar í utanaðlærðu atferli, sem verður hennar eina festa í lífinu. Veilan brýst fram af fullum styrk þegar hún giftir sig og eignast börn, m. a. af því að hún hefur ekkert að gefa þeirn nema spilaborg- ina. Fyrst kennir hún hjónabandi sínu um veiluna, en þegar líða tekur á sálgreining- una skilur hún að veilan hefur búið með henni frá unga aldri. Næst reynir hún að koma sökinni á móður sína og í stað gagn- rýnislausrar ástar á móðurinni vex fram ástríðufullt hatur. Enn kafar hún dýpra og skilur að lokum að móðir hennar er líka 35 £

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.