Vera - 01.07.1983, Qupperneq 18
breytt um VERU, kvennaframboðið, kvennabaráttu al-
mennt en allt er þetta tengt í okkar huga. Hlín sagði m.a.
að VERA ætti að sínu mati að vera kvennapólitískt mál-
gagn sem sinnti kvennamálum á víðum grundvelli, og
þyrfti hún að vera vettvangur fyrir hugmyndafræðilega
umræðu um kvennapólitík og kvenfrelsi, hvað þetta eigin-
lega væri og hvernig best og réttast væri að vinna að fram-
gangi baráttumála. Nefndi Hlín m.a. að gott dæmi um
umræðu sem ætti erindi í VERU, væri umræða um af
hverju kvennaframboðið í Reykjavík hafi ákveðið að taka
ekki þátt í framboði til alþingis á sama tíma og einstakar
konur innan framboðsins taka sig saman ásamt fleirum
og stofna samtök um kvennalista, sem býður fram til al-
þingis. Skyldur okkar við lesendur VERU og skyldur okk-
ar við kvennabaráttu yfirleitt krefðust þess að þessi um-
ræða yrði opnuð svo allir mættu vega og meta rökin, allir
hefðu tök á að taka þátt, því ein höfuðskylda okkar við
kvenfrelsisbaráttuna væri einmitt að vera aldrei of sann-
færðar um að það sem okkur þætti rétt væri endilega hið
eina rétta, gagnrýnin umræða og stöðugt endurmat á
stöðunni væri lífsnauðsyn fyrir hugsjónastarf eins og
okkar. Hlín ræddi áfram um ákveðin mál sem taka þyrfti
meira til umræðu í VERU, t.d. launa- og atvinnumál
kvenna, skóla- og uppeldismál o.fl. Þar sem markmið
VERU er áð vinna að vitundarvakningu meðal kvenna,
þarf bsrráttan fyrir nýjum viðhorfum að vera harðari,
stinga þarf á ýmsum kýlum þessa þjóðfélags og stefna að
því að VERA verði allra besta -blað landsins.
Fékk þetta góðar undirtektir og vorum við allar sam-
mála um að þessi mál væru brýn og væri það fyrsta skrefið
að halda fund eins og þennan til að finna hvernig línurnar
lægju. Jóhanna nefndi að kraftmiklar baráttugreinar
ættu að vera léttar og skemmtilegar og að útlit blaðsins
skipti mjög miklu máli í þessu samhengi en það þyrftum
við mjög að bæta. Magdalena benti lika á að í sjálfu sér
væru öll mál kvennamál, aðalatriðið væri að skrifa um
málin á annan hátt, það er að segja út frá viðhorfum
kvenna, en ekki endilega um önnur mál. Ekkert er sjálf-
sagt í þessum heimi, en með því að sýna hlutina í nýju ljósi
störfum við að vitundarvakningu og breyttum viðhorf-
um. VERA var gagnrýnd fyrir að taka ekki á málum sem
væru hitamál dagsins en það er erfiðleikum bundið þar
sem hún kemur svo sjaldan út. Imba Hafstað taldi einnig
að blaðið mætti vera nær raunveruleika okkar, ætti að
taka á málum sem snerta daglegt líf kvenna og vandamál
þess. Mikið var rætt um til hvaða hóps kvenna væri verið
að höfða með VERU, og varð það sameiginleg niðurstaða
að best væri að sá hópur sem VERA næði til væri sem
allra stærstur og breiðastur en þó mætti það ekki verða á
kostnað gæðanna, það er að segja VERA mætti ekki vera
útvötnuð og/eða leiðinleg.
Nú kom maturinn og var umræðan þá komin á það stig
að okkur þótti öllum gott að taka smáhvíld, borða og
slappa aðeins af. Áfram var þó haldið með að ræða hug-
myndafræði og klofninga, stefnur niður í grasrót og upp
í hæsta frama, og var það bæði gott og þarft þó sitt sýnd-
ist hverri.
Eftir þetta héldu umræður áfram og komu fram margar
hugmyndir um efni sem taka ætti fyrir í VERU, um
kvennahreyfingar hér og erlendis, einnig hugmyndir um
nýtt greinaform t.d. það sem kalla mætti „tveggja manna
tal“, þar sem tveir/tvær ræddust við um eitthvað af öllu
þvi sem okkur er svo hugleikið. Mikið var síðan rætt um
útlit blaðsins, og kom fram gagnrýni á það m.a. hve for-
síður væru daufar og lítið trekkjandi, og var ákveðið að
reyna að gera útlitið meira krassandi. Samstarfsörðugleik-
um er um að kenna í mörgum tilfellum, það er að segja
erfiðleikum í því að ná saman þeim konum sem að blað-
inu vinna, þar sem allar erum við í sjálfboðavinnu í þessu
og í a.m.k. einu öðru starfi. Ákváðum við að reyna að efla
samvinnuna og tengslin milli hópanna sem starfa að
VERU, og eins tengsl VERU við annað starf kvennafram-
boðsins, með því að boða til eins stórfundar fyrir útkomu
hvers blaðs, þar sem allar mættu og tengdu betur saman
það sem unnið er að. Auglýsing um fundinn yrði hengd
upp og eru þar allir velunnarar blaðsins velkomnir. Einnig
var talað um að eftir að VERA kemur út í hvert sinn yrði
hún rædd á félagsfundi (sem haldinn er mánaðarlega) svo
gagnrýni kæmi fram strax, ásamt hrósyrðunum og þannig
væri stöðugt unnið að stefnumótun og endurbótum.
Um tvöleytið voru flestar orðnar nokkuð þreyttar,
margar á leið á aðra fundi eða í fyrirhuguð helgarferðalög
svo ákveðið var að láta þessu þá lokið. Vorum við allar
sammála um að fundurinn hafi verið bæði gagnlegur og
skemmtilegur, og slíkt þyrft að endurtaka að nokkrum
mánuðum liðnum. Minnist þess þá einhver að þennan dag
var rétt rúmlega ár liðið síðan fyrsti ritnefndarfundur
VERU var haldinn, skemmtileg tilviljun og táknræn. Von-
um við að lesendur hafi eitthvert gagn eða gaman af að
fylgjast svo með starfinu á VERU, hefur þó verið stiklað
á stóru og mörgu verið sleppt sem rætt var um af ákafa.
Við minnum á að allar verða að leggjast á eitt um að gera
VERU sem veglegasta og þiggjum allar ábendingar með
þökkum og hvetjum allar þær sem áhuga hafa á starfinu
til að hafa samband.
Kristín
Kœru lesendur,
ritnefndin óskar eftir bréfum frá lesendum um
hvað þeim finnst um efnið í VERU, og eftir grein-
um, ljóðum og sögum og fleiru sem gaman væri að
birta. Dragið nú fram pappír og penna, og skrifið
niður og og sendið okkur það sem svo lengi hefur
beðið eftir að komast á blað.
Ritnefndin heldur fundi á mánudögum og föstu-
dögum kl. 17, og oftar ef þarf. Komið, skrifið, eða
hringið, við bíðum!
Bestu kveðjur, VERA.
Smásagnasamkeppnin, athugið!
Skilafrestur í smasagnasamkeppninni var fram-
lengdur til 1. ágúst, og munið að verðlaunin eru
5000 kr.
VERA áskilur sér rétt til birtingar á sigursög-
unni, og skorar á konur að drífa nú í að senda inn
sögur í samkeppnina.
Handrit seindist:
Ritnefnd VERU
Hótel Vík
Vallarstræti
101 Reykjavík
„Smásaga“
Handrit séu merkt með dulnefni en rétt nafn og
heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi.
Dómnefndina skipa þær
Dóra Guðmundsdóttir, verslunarmaður.
Fríða Á. Sigurðardóttir, rithöfundur.
Ragnhildur Richter BA í islensku.
— best væri aö sá
hópur sem VERA
næöi til væri sem
ailra stærstur og
breiöastur...
— vettvangur fyrir
hugmyndafræöilega
umræöu um kvenna-
pólitik og kvenfrelsi..
— gagnrýnin um-
ræöa og stööugt end-
urmat á stööunni er
lífsnauösyn...
— öll mál eru
kvennamál, aöalat-
riöiö er aö skrifa um
málin á annan hátt,
þx.u.s. út frá viöhorf-
um kvenna...
— rétt rúmlega árliö-
iö síöan fyrsti rit-
nefndarfundur
VERU var haldinn...
18