Vera - 01.10.1983, Síða 2
„Ég hitti konu fyrir skömmu. Hún var ófrísk. Þessi kona
sagði mér, að það hefði tekið sig mörg ár að gera það upp við
sig, hvort hún vildifæða barn íþennan heim, svo mikil óvissa
ríkti umframtíðina. Innst inni barþessi kona þó von í brjósti,
— von, sem sagði henni, að hún mœtti ekki gefast upp.
Hugarangur þessarar konu er ekkert einsdœmi. Hræðslan
við að móðirjörð verði ekki byggileg börnunum okkar um ó-
komna framtíð verður sífellt áleitnari og hefur leitt til þess,
að þúsundir manna þyrpast út á göturnar og hrópa á frið.
Horfurnar eru ógnvænlegar. Sú helstefna, sem einkennir
heimsmálin núna hefur orðið til þess að þriðja og ægilegasta
heimsstyrjöldin verður œ óumflýjanlegri. Tortíming alls lífs
á jörðinni er orðin óhugnategur nálægur raunveruleiki".
Þannig, m.a. fórust fulltrúa Kvennaframboðsins orð á úti-
fundinum, sem Kvennalistinn gekkst fyrir um friðarmál á
Lækjartorgi þ. 26. ágúst. Sú krafa, sem þar kom fram um
kjarnorkuvopnalausan heim ogfrið ájörðu, erkrafasem all-
ir hljóta að geta tekið undir. Skelegg barátta kvenna að því
marki hefursett sterkan svip á friðarhreyfingarnar bæði hér
heima og erlendis. Engan þarf að undra þótt einmitt við kon-
ur reynum að standa saman gegn þeim vígahug og því vopna-
skaki, sem einkennt hefur mannkynssöguna og löngum hefur
verið kennt við karlmennsku. Séum við ekki reiðubúnar til að
kveða niður þá tegund karlmennskunnar er hætt við að
mannkynssögunni Ijúki á snögglegan og hrollvekjandi hátt.
Eða, og eins ogfulltrúi Kvennaframboðsins orðaði það á
Lækjartorgi: „Krefjumst niðurrifs kjarnorkubúnaðar stór-
veldanna ogþað strax! Það er forsendaþess, að börnin okkar
eigi sér framtíð".
VERA
5/1983 OKTÓBER
Útgefandi:
Kvennaframboðið í Reykjavík
Hótel Vík
Sími 22188 og 21500
Ritnefnd:
Helga Thorberg
Hlín Agnarsdóttir
Jóhanna V. Þórhallsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Útlit:
Andrea Jónsdóttir
Kicki Borhammar
Helga Thorberg
Ábyrgðarmaður:
Hlín Agnarsdóttir
Forsíöa:
Ragna Hermannsdóttir
Auglýsing og dreifing:
Guðrún Alfreðsdóttir
Setning og umbrot:
Alprent
Prentun:
Hólar h.f.
Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgð
höfunda sinna og eru ekki endilega
stefna Kvennaframboðsins í Reykjavík.
Vera kostar kr. 80 í lausasölu.
Áskriftarsími:
22188 og 21500
2