Vera - 01.04.1984, Qupperneq 12

Vera - 01.04.1984, Qupperneq 12
Brot úr erindinu sem Lilja Ólafsdóttir hélt á ráðstef nu Jaf nréttisráðs og Skýrslutæknifélags íslands. Eitt aöaleinkenni vinnumarkaðarins í öllum iðnvæddum löndum er kyngreining starfa. Karlar og konur skiptast að mestu leyti í aðskilda hópa og samkeppni á milli þessara tveggja arma er oft mjög lítil. Oft er einnig talað um skiptingu vinnumarkaðarins í hálauna- og láglaunasvið. Hálaunahlutinn Góðir tekjumöguleikar Tilfærslur í störfum upp á við Áhrif á eigið starfssvið Áhrif á umhverfið Ákvarðanataka Láglaunahlutinn Lág laun Litið svigrúm að „vinna sig upp” Áhrif á starf og umhverfi lítil Störf oft ótrygg Það fer víst ekki fram hjá neinum í hvorum þessara hópa konur eru fjölmennari. Ef einhver er samt í vafa nægir að minna á nýjustu kannanir hérlendis sem sýna að laun kvenna á besta vinnualdri eru sambærileg við unglingsstráka og karla á ellilífeyrisaldri. Því er haldið fast fram að það séu einmitt störfin sem falla undir láglaunaskilgreininguna sem fyrst veröa fyrir áhrifum tölvuvæðingarinnar. Þaö er því fólkið sem vinnur þau störf sem fyrst og fremst missir vinnu sína og það hefur jafnframt minni möguleika til tilfærslu. Það er til leið út úr ógöngunum „E.t.v. er ástæða til bjartsýni, þetta er jú ekki fyrsta tæknibylting mannkynssögunnar og hinar hafa ekki gert út af við samfélögin. En óneitanlega hafa tæknibyltingar komið niður á miklum fjölda manna um stundarsakir, þótt hingað til hafi þegar til lengdar lét, skapast fleiri störf og nýjar starfs- greinar og þannig komist á jafnvægi á nýjan leik.” Þetta sagði Lilja Ólafsdóttir m.a. á ráðstefnu Skýrslutæknifélags íslands og Jafnréttisráðs um „áhrif tæknibyltinga á atvinnulífið með tilliti til jafnréttis kynjanna.” Lilja er deildarstjóri þjón- ustudeildar Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkur- borgar. Hún var fús til að rabba við VERU um „tölvubyltinguna”. ÞRÓUNIN — Hvenær fór tölvubyltingin að hafa veruleg áhrif á störf manna? Það má segja aö það hafi byrjað fyrir svona 10 árum, en nýrri tækni hefur þó miklu lengur verið tekið hér með fögnuði. Allt frá stríðsbyrjun hefur veriö mikla vinnu að hafa og oft verið meira framboð af vinnu en fólki, það hefur því þótt gott að fá tækni í stað fólks. Lengi vel hefur þetta ekki komiö niður á fjölda starfsfólks t.d. á skrifstofum. Það hefur alltaf verið nóg af öðrum verkefnum. S.l. 10 ár hefur þó verið fækkun á starfsfólki á stórum skrifstofum, en ekki þeim litlu því þar hafa ekki verið peningar til að koma upp hugbúnaði og tölvum. Þetta er aö breytast. Það hefur ekki verið mikið um uppsagnir á þeim stöðum sem ég þekki til heldur hefur ekki verið ráðið í þær stöður sem hafa losnað. — Er til nóg af fólki sem kann til verka þegar tölvur eru annars vegar? Þvi miöur vantar vel menntað fólk í þessum fræðum, en mennt- unarleiðin er aðallega í gegnum tölvunarfræðina við Háskóla ís- lands. Þar er þó aðaláherslan lögð á stærðfræöi en minna á skipulagningar- og stjórnunarþáttinn. — Hvaö meö tölvunámskeið? Með því að fara á tölvunámskeið kíkir fólk inn um skráagatið á tölvuheiminum, sem er ágætt, en það er erfitt að finna námskeið 12

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.