Vera - 01.04.1984, Page 23

Vera - 01.04.1984, Page 23
KONUR Á VINNUMARKAÐNUM Ég hóf nám í Sjúkraliðaskóla íslands veturinn 76—’77 en fyrri menntun mín og störf voru metin 68 punktar, þannig að ég lauk sjúkraliðanáminu á um einu ári. } dag þurfa konur að hafa lokið 2ja ára námi á hjúkrunarbraut og svo rúmu ári í Sjúkraliðaskólanum til að öðlast full rétt- |udi sem sjúkraliðar. En Sjúkraliðaskólinn . fur í samvinnu við Námsflokka Reykja- víkurborgar boðið upp á 2ja ára nám þar til undirbúnings. Jafnframt er Sjúkraliðaskól- 'nn eina stofnunin á þessu sviði sem metur úsmóðurstarfið til launaflokka. Aður hafði ég unnið alhliða störf á ®imavistarskóla og í verslun en fann svo varð að verða mér úti um einhverja n9menntun til að komast út á vinnumark- 'nn. Ég hafði ekki komið inná sjúkrahús ®ma sem gestur þegar ég fór að vinna r sem sjúkraliði en starfið höfðaði til mín. 9 hafði áhuga á að vinna með fólk en ekki auða hluti. Það fann ég best á meðan ég Va^ í verslun. Starfið sjálft er yndislegt en starfsmatið murlegt. Karlmenn hafa heldur ekki lað- st Því sjálfsagt launanna vegna. Sjúkraliðastarfiö er vaktavinna sem á vel við mig persónulega, þó það fari ekki vel með heilsuna. Vinnuvikan er 40 tímar og síðan bætast við aukavaktir. Að jafnaði hef ég unnið 50% yfirvinnu sl. 3 ár eða um 60-70 tíma á viku til að láta enda ná sam- an. Ég er fráskilin og á uppkomna dóttur og er að reyna að vera sjálfstæð og ábyrg manneskja. Að ætla svo að framkvæma eitthvað eins og að kaupa sér íbúð kallar á tvöfalda vinnu. Launin eru það lág. En svo má líka segja að ég hef getað unnið svona mikið af því ég er ein. Sjúkraliðastarfið er fólgið í allri almennri hjúkrun og að vera tengiliður sjúklingsins við hjúkrunarfræðinga og lækna. Þegar viðkomandi manneskja getur ekki sinnt sínum þörfum sjálf tökum við við. I þessu starfi er engin ein vakt eins. Þarfir sjúkling- anna eru svo misjafnar og hjúkrunin fer eftir ástandi sjúklingsins hverju sinni og hvort hann er fær um að hjálpa sér eitt- hvað sjálfur eða ekkert. Þar taka sjúkralið- ar við tímabundið. Við hver vaktaskipti er gefin skýrsla svo næsta vakt viti hvað hafi gerst með sjúklingana síðustu 16 tímana og framhaldsmeðferð geti haldið áfram. Því þetta er hópvinna sjúkraliða, hjúkrun- arfræðinga og lækna og það verða að vera jákvæð og góð tengsl þar á milli. En það er auðvitað fyrst og fremst sjúklingur- inn sem er persónan sem allt snýst um. Sjúkraliðastarfið er mjög tilbreytingaríkt og fyrir mig er mjög gott að hafa það á til- finningunni að geta skiptu um hjúkrun þ.e. flutt mig á milli deilda, því hjúkrun er svo margskonar t.d. geðhjúkrun, öldrunar- hjúkrun eða handlæknishjúkrun. Nú virðast vera að opnast möguleikar á framhaldsmenntun fyrir sjúkraliða sem stéttin hefur mikinn áhuga á. En þetta er mjög hefðbundið kvenna- starf, því það hefur jú verið viðtekið að það er konan sem á að bera umhyggju fyrir heilsu barna, gamalmenna og fólki yfir- leitt. Maður hefur það á tilfinningunni að konur eigi að gera þetta án launa eins og húsmóðirin heima hjá sér annast börn sin og maka launalaust. Sjúkraliðar eru starfs- menn ríkis og borgar og er litið á þau sem fórnarstörf sem en ekki störf sem konur eigi að þiggja laun fyrir. 23

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.