Vera - 01.10.1987, Page 5
verðum bara að sjá þá í réttu Ijósi. Eins og
málin eru í dag, þá snúa þau öfugt. í stað
þess að eldra fólk, sem lokið hefur við hús-
byggingu og allskyns lántökur vegna upp-
byggingar heimilisins fái hæstu launin þá
er það unga fólkið sem á að fá styrki til að
hlúa að hjónabandi sínu og að ala upp
börnin. Það á ekki að vera neitt val kon-
unnar, það á að vera val FORELDRANNA
að vera heima tvö fyrstu árin með börnun-
um. Þau eiga að vinna V2 dag á meðan
börnin eru lítil, meðan þau eru að byggja
húsið sitt. Það þarf að efla jafnréttis áróð-
urinn. Við erum þreyttar, við helltum okkur
svo hressilega útí baráttuna á byltingar-
tímunum á 8. áratugnum. Nú höfum við
hvílt okkur og nú verðum við að herða róð-
urinn á ný.
En stelpur mínar munið þið að það erum
við sem ölum strákana upp. Við höfum
þetta raunverulega í höndum okkar.
Ein sem stundum er alveg aö gefast
upp.
Takk fyrir bréfiö, vonandi vilja fleiri leggja
orð í belg um þessi mái.
Ritnefnd
• Hafið þið áhuga á útgáfumálum?
• Hafið þið áhuga á Veru?
• Viljið þið móta Veru í nútíð
og framtíð?
• Komið þá á fund um Veru og hafið
áhrif á þróun eina KVENNABLAÐS
sinnar tegundar á íslandi
• Fundurinn er opinn öllum
áhugasömum konum
• Fundurinn verður haldinn í
Hlaövarpanum laugardaginn
24. október kl. 14.00.