Vera - 01.10.1987, Síða 21
Ljósmynd: Wiebe Kunst.
nafni líflátinn. Þaö var áriö 1792 þegar franska byltingin var í al-
gleymi og minni röð og regla á hlutunum en áður. Árið eftir var
hann samt handtekinn aftur og siðustu 20 árin sem hann lifði var
hann með annan fótinn ýmist í fangelsi eða á geðveikrahæli. Hann
bjó þó við gott atlæti allan tímann og naut þar enn fjölskyldu og
vina. Hann fékk meira að segja að hafa hjá sér langtímum saman þá-
verandi konu sína, Marie — Constance Rénelle.
Fyrri kona hans, Rénée — Pélagie de Montreuil var þá loksins skil-
in við hann en hún hafði sýnt þessum vandræðamanni sínum ótrú-
legt umburðarlyndi og langlundargeð. í upphafi hjónabandsins
smitaðieiginmaðurinn nýbakaði hana af kynsjúkdómi (hann hélt því
samt fram að hún væri smitberinn), árum saman hélt hann við systur
hennar og gerði allt sem í hans valdi stóð til að spilla sambandi
þeirra mæðgna, Rénée og Madame de Montreuil. Þessi tengda-
ntóðir de Sades var þó sú kona sem ól upp börnin hans þrjú; ,,starf"
hans tók alla orku hjónanna beggja þó að Renée tæki ekki nema að
litlu leyti beinan þátt í fólskuverkunum. Fram í andlátið var Sade
samur við sig og tvö síðustu árin sem hann lifði, þá kominn yfir
sjötugt, hélt hann við fjórtán ára gamla stúlku, Madelaine Leclerc.
Blessað barnið var þó áreiðanlega ekki sæl með elskhugann, hún var
ein hinna keyptu.
Sögur Sades eru í stórum dráttum í samræmi við það sem hann
gerði sjálfur í lifandi lífi. Morðin sem hann framdi eru að vísu færri
en sjálfsagt hefði hann viljað hafa þau fleiri hefðu ekki lög og al-
menningsálit sett honum skorður. Hann var líka æfur yfirvöldunum
og öðrum þeim sem gagnrýndu gerðir hans. Að eigin dómi gerði
hann ekkert rangt eins og kemur fram í bréfi sem hann skrifaði vini
sínum en þar ber hann sig undan óréttlæti heimsins. Hann segir:
,,Ég er ekki sekur um annað en venjulegt kynsvall svo sem það er
iðkað af öllum karlmönnum og að meira eða minna leyti í samræmi
við náttúrulegar tilhneigingar þeirra og skapferli".
Þarna ratast honum einmitt satt á munn. Kvenhatrið í vestrænni
menningu er ekki tilkomiðum miðja 18. öldogþaðfórekki ígröfina
með Marquis de Sade. Væri svo þyrftu konur núna ekki að stríða við
klámið og gætu farið um óhræddar hvar sem er jafnt að nóttu sem
degi. Þá væru verk Sades löngu gleymd því að þau eru ákaflega
leiðigjörn og einhæf eins og annað klám. Þá hefði heldurekki mynd-
ast nein þjóðsaga um þennan ómerkilega ofbeldis- og glæpamann
vegna þess að mörgum fremstu andans mönnum, körlum og kon-
um, hefði ekki komið til hugar að taka hann upp á arma sína að hon-
umdauðum, dáðgerðir hansogafsakað, rómantíseraðglæpaverkin
og nánast tekið hann í guðatölu.
De Sade hefur haft gífurleg menningarleg áhrif og það eru engin
smámenni sem hafa tekið að sér að miðla boðskap hans og veraldar-
sýn til okkar nútímamanna. Má þar nefna Baudelaire, Flaubert,
Swinburne, Dostoevski, Cocteau og Apollianiere sem allir dáðu hann
fyrir það sem kallað hefur verið „hugrekki hans að vera". Simone
de Beauvoir hefur skrifað langt varnarrit fyrir hann og talar þar m.a.
um ,,djöfullega snilld" hans. Camus telur hann vera „fyrsta hrein-
ræktaða uppreisnarmanninn sem jafnframt er fræðilegur'L, og
Kafka fer heldur ekki dult með hrifningu sína. Það voru sérstaklega
vinstri sinnaðir lista- og menntamenn sem slógu skjaldborg um Sade
og sáu m.a. í honum hugrakkan mann og snjallan; mann sem þorði
að bjóða birginn siðaboðum smáborgarans. Hið sama kemur fram
hjá flestum þeim sem hafa ritað ævisögu hans, þar eru gerðir hans
afsakaðar á allan hátt og taldar bera vott um hugrekki og dirfsku og
hneykslast á yfirvöldunum fyrir þá þröngsýni að loka inni þennan
snilling.
KONUR ÁN VERÐLEIKA
Hvaða máli skiptir þó að konur séu meiddar og drepnar? í menn-
ingu sem er gegnsýrð af ofbeldi og kvenhatri sjá karlmenn það ekki.
í slíkri menningu er hugmyndafræði Sades tekið fagnandi, konur
eru hórur og ,,hafa enga mannlega verðleika" eins og Halldór
Laxness segir í Alþýðubókinni um svokallaðar borgaralegar konur í
Bandaríkjunum. Og hann heldur áfram: ,,Konur hinnar betri borg-
arastéttar kunna ekki neitt, geta ekki neitt, vilja ekki neitt, vita ekki
neitt, hugsa ekki neitt — íeinu orði sagt; eru ekki neitt nema kynferð-
isverður, gripir ræktaðir til þess að svala frygð bílífismanna úr rán-
21