Vera - 01.10.1987, Page 24

Vera - 01.10.1987, Page 24
< I myrkrinu kemur hann til mín sorg hans er söngurinn um gleymsku þjóðar gleymt hefur hún að standa vörð um frelslð. Þannig lýsir Nína Björk svarta hestinum sem Ijóða- bókin „Svartur hestur í myrkrinu" dregur nafn sitt af. Um tilurð hans segir hún: ,,Mér fannst hann koma á gluggann og stara á mig. Þannig kom þessi hestur til mín.“ í Ijóðinu sér hún hestinn stefna í heiðina með logandi augu sem vildu vera vopn þjóðarinnar, en enginn sat hann og hófatak hans skall eins og ekki á veginn Seinna í Ijóðinu syngur hesturinn: ekki syngur frelsið í sporum mínum lengur enginn situr mig lengur e/tri er vætt í veginn. Á þennan hátt tjáir Nína Björk ósk sína um herlaust Island, en sú ósk hefur undanfarið færst í alþjóðlegri búning en áður tíðkaðist, um leið og ,,gleymskan hef- ur ofið net í vitund þjóðar/' eins og segir í Ijóðinu „Hún“ í sömu bók. Hún — í Ijóðaflokknum „Fugl ótt- ans“ heyrir raddir og í hana hellast óstöðvandi grát- köst, því hún er svo hrædd um að hesturinn sé dáinn. Um tíma eignast hún vináttu Manneskjunnar, sem kallar sig lambadrottningu þessa lands og flytur sunnudagsboðskap til „vesalings ágirndavarga og valdaseggja sem geyma helsprengjuna í lófa sér.“ En manneskjan gefst upp á að bera boðskap sem nær aðeins til vesalinga og lamba. Liðið gefur henni sprautu og syngur ættjarðarljóð meðan hún sofnar með uppljómað réttlætisbros á vörum. í Ijóðabálknum er blandað saman mikilli alvöru og grátbroslegu skopi, en það tel ég megin einkenni á skáldskap Nínu Bjarkar. Sú leið er vandrötuð, en Nína hefur fullt vald á þessum undarlega seið. 24

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.