Vera - 01.10.1987, Síða 28

Vera - 01.10.1987, Síða 28
„Við höfum gert íslenska kvenna- baráttu sýnilega" Kristín Ástgeirsdóttir. Kosningarnar sem fram fóru í apríl síð- ast liðnum voru um margt merkilegar. Stærsti stjórnmálaflokkur landsins og sá sem ráðið hefur miklu um alla stefnumót- un áratugum saman gekk klofinn til leiks. Nýr flokkur varð til á grundvelli hneykslis- mála og valdabaráttu. Hvort þessi klofn- ingur verður varanlegur mun framtíðin leiða í Ijós, en það er athyglisvert að sam- kvæmt nýjustu skoðanakönnun er Sjálf- stæðisflokkurinn aftur á uppleið. Alþýðu- flokkurinn sem lengi vel virtist ætla að verða sigurvegarinn og kostaði öllu til, mátti bíta í það súra epli að ná miðlungi góðum árangri. Alþýðubandalagið sárt og ákaflega mætt eftir öll bræðravígin beið sinn mestaósigurfrástofnun þess, meðan landsfaðirinn Steingrímur stóð upp með reisn. Mestu tíðindi kosninganna voru þó án efa stórsigur Kvennalistans. Við sem lögðum út í fjórðu kosningarnar á ferli okkar vorum nokkuð vissar um að halda okkar hlut og vel það eftir vel unnið starf á alþingi síðasta kjörtímabil. Það var þótvennt sem við sáum ekki fyrir. í upphafi ársins óraði okkur ekki fyrir því að Kvenna- listanum myndi takast að bjóða fram í öll- um kjördæmum. Hreyfing var komin á sex kjördæmi í janúar en hin tvö sem eftir voru þögðu þunnu hljóði. Kraftaverkið gerðist, konur á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra gátu ekki hugsað sér að sitja hjá þegar nær dró úrslitum, þær helltu sér út í baráttuna og stóðu sig með sóma. Hitt sem við sáum ekki fyrir og kom okkur vissulega til góða var klofningur Sjálf- stæðisflokksins. Ég held að fólki hafi of- boðið siðleysið sem gegnsýrði það mál og athyglin beindist að mannfórnum, valda- bröltinu og hörkunni sem einkenndi alla gömlu flokkana. Eftir að almenningur hafði horft upp á ,,aftökur“ og valdabar- áttu í prófkjörum og kringum þau, var mælirinn fullur hjá fjölda kjósenda. Eina hreyfingin sem stóð utan við og sýndi allt önnur viðbrögð var Kvennalistinn. Því snéru margir sér til hans í von um heiðar- leika og aðrar áherslur. Með þessum orðum er ég alls ekki að gera lítið úr stefnu Kvennalistans, kosn- ingabaráttunni og því starfi sem unnið var á síðasta kjörtímabili. Ég held einmitt að okkur hafi tekist að sýna hverjar við vorum og hvað við vildum, þess vegna gat fólk um allt land stutt okkur heilshugar. Kosningarnar gjörbreyttu stöðu Kvennalistans. í fyrsta lagi tvöfaldaðist þingkvennatalan, sem mun væntanlega minnka verulega vinnuálagið á hverja þingkonu. í öðru lagi vakti sigurinn heims- athygli og hefur oröiö til þess að konur um allan heim sem glíma við karlveldi síns lands líta til okkar í spurn um hvort sér- framboð séu leið sem konur ættu að fara. í þriðja lagi er pólitísk staða okkar mun sterkari bæði út á við og inn á við, en kröf- urnar sem gerðar eru til okkar jafnframt meiri. í fjórða lagi hefur okkur tekist að breyta þjóðfélagsumræðunni töluvert sbr. það að ríkisstjórnin er búin að skipa nefnd um fjölskyldumál sem á að kanna ýmsa þá þætti sem snúa að fjölskyldunni (ekki var stjórnarandstööunni boðið að vera með í þessari mikilvægu umræðu). Hefði slík nefnd komið til án tilvistar Kvennalistans? I fimmta lagi voru kosningarnar enn eitt skrefið í þá átt að fjölga konum á þingi. Fyrir kosningarnar voru konur 15% þing- manna en eru nú rúm 19% (voru 5% fyrir kosningarnar 1983). Allt er þetta í rétta átt og ég hika ekki við að eigna Kvennalistan- um þennan sigur. Eftir sem áður þurfum við að glíma við margan vanda. Staða kvenna er slæm. Þessa dagana virðast mörg dagheimili í Reykjavík standa frammi fyrir lokun deilda, vegna þess að ekki fæst fólk til starfa. Mikill skortur er á vinnuafli í þeim greinum sem konur hafa haldið uppi, vegna hinna lágu launa. Konur grípa önn- ur störf í þeirri miklu þennslu sem ríkir á vinnumarkaðnum, meðan ríki og bær halda fast í láglaunastefnuna. Sífellt fleiri konur stunda fulla vinnu og meira en það, en stjórnendur samfélagsins þrjóskast stöðugt við að viðurkenna þörf barna fyrir öruggt athvarf þann tíma sem foreldrar eru að vinna. Kannski nefndin góða geti opn- að augu þeirra! En ég spyr hvenær þrýtur langlundargeð kvenna? Hve lengi ætla þær að láta bjóða sér endalausa biðlista dagvistarstofnana og sundurslitinn skóla- dag barna? Hve lengi þessi lágu laun? Á sama tíma eru menn svo að tala um að ís- lendingar séu of fáir, sem þýðir auðvitað það að fólk á ekki nógu mörg börn? Hvers vegna skyldi það nú vera? Gaman væri að geta opnað augu ráðamanna fyrir sam- hengi lífsins úti í samfélaginu og innan veggja heimilanna. Eða vita þeir þetta allt en vilja ekki viðurkenna? Er karlveldið samt við sig? En nóg um það og aftur út í hina stóru veröld. Konur sem fengist hafa viö kvenna- sögu/kvennarannsóknir hafa mikið velt fyrir sér þeirri spurningu hvernig hægt sé að binda endi á kúgun kvenna og að breyta eða afnema karlveldið sem með ýmsum aðferðum sýnilegum og ósýnileg- um heldur konum ,,á sinum stað“. Áðferð- ir karlveldisins hafa veriö kortlagðar og eitt af því sem margar konur eru sammála um er að algengasta aðferð karlveldisins sé að gera konur ósýnilegar. Saga kvenna er ekki í sögubókunum, list kvenna ekki á söfnunum, þær eru utan valdastofnana, störf þeirra lítils metin o.s.frv. því hlýtur eitt af svörum kvenna að vera að gera konur 28

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.