Vera - 01.10.1987, Side 29
sýnilegar. Draga fram í dagsljósiö konur
fortíöar og nútíöar og standa aö baki þeim
í kvennabaráttunni hvar sem hægt er. Þaö
er einmitt þetta sem viö höfum verið aö
gera, við höfum gert íslenska kvennabar-
áttu sýnilega svo um munar. íslenskar
konur þykja eitt veraldarundur, sem
margir vilja sjá og heyra.
Allt þýöir þetta aukna ábyrgð, gagnvart
okkur sjálfum og gagnvart þeim konum
sem fylgjast meö okkur út um allan heim.
Vandinn er aö stíga næstu skrefin og rata
rétta leið. Aö mínum dómi veröur það meg-
inhlutverk Kvennalistans á því kjörtímabili
sem nú fer í hönd aö halda áfram aö út-
færa þær hugmyndir sem viö byggjum á.
Viö veröum áfram aö standa vörö um
hagsmuni kvenna og reyna aö ná konum
saman svo aö takast megi aö bæta launa-
kjörin. Viö verðum aö fylgja eftir hugmynd-
um okkar um valddreifingu og áhrif fólks-
ins I landinu á eigið líf, líkt og við gerðum
í útvarpslagafrumvarpinu sællar minning-
ar. Sýna hvernig viö viljum skipuleggja
stofnanir og samfélagið allt. Flestir þeir
stjórnmálaflokkar sem hér starfa lifa fyrir
líðandi stund og hafa algjörlega glatað
framtíöarsýninni sem er þó svo nauðsyn-
leg. Kvennalistinn á að standa vörö um
hagsmuni kvenna, en hlutverk okkar er
engu síður aö horfa fram á veginn, aö sýna
frumkvæöi og vera uppspretta nýrra rót-
tækra hugmynda sem einn góöan veður-
dag kynnu aö breyta veröldinni.
Rithöfundurinn Marilyn French segir á
einum stað aö feminisminn (kvenfrelsis-
stefnan) sé eina raunhæfa andsvarið viö
karlveldinu. Karlveldiö hefur dregið heim-
inn fram á heljarþröm mengunar og víg-
búnaðarkapphlaups. Það tryggir hags-
muni hinnafáu, en traðkaráhinum mörgu.
Það byggir á samþjöppun valds í höndum
karla en nærist á þeim fjölda kvenna sem
meö störfum sínum, umhyggju og endur-
nýjun lífsins gerir körlum kleift að stunda
sín störf og halda sínu striki. Þeir fá sína
þjónustu á hverju sem gengur og afleið-
ingarnar blasa alls staðar við. Óréttlætið
ríkir og þaö sætta konur sig ekki viö. Þess
vegna hefur kvennabaráttan staðið öldum
saman og birst I ýmsum myndum.
Þaö er horft á okkur utan úr heimi og hér
heima. Okkar bíður erfitt verkefni í ósam-
stæöri stjórnarandstööu andspænis stjórn
sem á ytra boröi sýnist sterk. Það bendir
fátt til þess að þessi ríkisstjórn veröi launa-
fólki hliöhollari en hin fyrri, hvaö þá aö ein-
hverjar grundvallarbreytingar muni eiga
sér staö. Bankamáliö er fyrsta vísbending-
in um hvers konar valdasúpa þar er á ferö.
Því er brýnt aö halda uppi snarpri,
hressilegri stjórnarandstööu sem hvergi
skirrist við aö sýna í hvers konar samfélagi
viö búum, hverjir ráöa för og hvernig viö
viljum hafa þaö ööru vísi.
Ábyrgö okkar er mikil, gagnvart íslensk-
um konum og konum heimsins. En hér
gagnast best þaö sem viö höfum gert hing-
að til, aö hlusta á okkar innri rödd og hlýða
eigin sannfæringu. Minnast þess aö við
erum aö fara nýjar leiöir, sem ekki hafa
verið kannaöar áöur af konum. Mikilvæg-
ast er aö horfa á heiminn af sjónarhóli
kvenna, þaöan sem sér vítt um veröld alla,
þaðan sem lífiö blasir viö í öllum sínum fjöl-
breytileika, þaðan sem hægt er að meta
hvaö er lífvænlegast, réttlátast og mann-
úðlegast.
Kristín Ástgeirsdóttir
FRÁ HEILSURÆKT Sóknar Skipholti 50A, Reykjavík
TAKIÐ TIL HENDINNI
Heilsurækt Sóknar er i fullum gangi OG ÖLLUM OPIN! ★ Ný líkamsræktartæki til endurþjálfunar ★ Heitir leirbakstrar ★ MA Professional Ijósabekkur meö andlitsljósum ★ Likamsnudd ★ Vatnspottur og gufubaö ★ Karlatímar á föstudögum kl. 15—19.00 Opiö virka daga frá 9.00 til 21.00 Hittumst hressar og kátar. Sjón er sögu rikari! Timapantanir í síma 84522. Eftirtaldar verklegar greinar eru í boöi á haustönn 1987: Fatasaumur, Myndbandagerð, Myndmennt, Postulínsmálun, Skrautskrift og Leöursmíði (sem hefst um miöjan október). Nýjar greinar: Bókband og Aö gera upp hús- gögn hefjast upp úr miðjum október.
FUNDARSALUR SÓKNAR, AÐ SKIPHOLTI 50A, REYKJAVÍK er leigöur félagasamtökum og einstaklingum til fundarhalda og samkomuhalds. Sæti fyrir 200 manns. Upplýsingar gefur húsvörður í síma 688175. Innritun í Miöbæjarskóla eöa í símum 14106 og 12992.
29