Vera - 01.10.1987, Síða 29

Vera - 01.10.1987, Síða 29
sýnilegar. Draga fram í dagsljósiö konur fortíöar og nútíöar og standa aö baki þeim í kvennabaráttunni hvar sem hægt er. Þaö er einmitt þetta sem viö höfum verið aö gera, við höfum gert íslenska kvennabar- áttu sýnilega svo um munar. íslenskar konur þykja eitt veraldarundur, sem margir vilja sjá og heyra. Allt þýöir þetta aukna ábyrgð, gagnvart okkur sjálfum og gagnvart þeim konum sem fylgjast meö okkur út um allan heim. Vandinn er aö stíga næstu skrefin og rata rétta leið. Aö mínum dómi veröur það meg- inhlutverk Kvennalistans á því kjörtímabili sem nú fer í hönd aö halda áfram aö út- færa þær hugmyndir sem viö byggjum á. Viö veröum áfram aö standa vörö um hagsmuni kvenna og reyna aö ná konum saman svo aö takast megi aö bæta launa- kjörin. Viö verðum aö fylgja eftir hugmynd- um okkar um valddreifingu og áhrif fólks- ins I landinu á eigið líf, líkt og við gerðum í útvarpslagafrumvarpinu sællar minning- ar. Sýna hvernig viö viljum skipuleggja stofnanir og samfélagið allt. Flestir þeir stjórnmálaflokkar sem hér starfa lifa fyrir líðandi stund og hafa algjörlega glatað framtíöarsýninni sem er þó svo nauðsyn- leg. Kvennalistinn á að standa vörö um hagsmuni kvenna, en hlutverk okkar er engu síður aö horfa fram á veginn, aö sýna frumkvæöi og vera uppspretta nýrra rót- tækra hugmynda sem einn góöan veður- dag kynnu aö breyta veröldinni. Rithöfundurinn Marilyn French segir á einum stað aö feminisminn (kvenfrelsis- stefnan) sé eina raunhæfa andsvarið viö karlveldinu. Karlveldiö hefur dregið heim- inn fram á heljarþröm mengunar og víg- búnaðarkapphlaups. Það tryggir hags- muni hinnafáu, en traðkaráhinum mörgu. Það byggir á samþjöppun valds í höndum karla en nærist á þeim fjölda kvenna sem meö störfum sínum, umhyggju og endur- nýjun lífsins gerir körlum kleift að stunda sín störf og halda sínu striki. Þeir fá sína þjónustu á hverju sem gengur og afleið- ingarnar blasa alls staðar við. Óréttlætið ríkir og þaö sætta konur sig ekki viö. Þess vegna hefur kvennabaráttan staðið öldum saman og birst I ýmsum myndum. Þaö er horft á okkur utan úr heimi og hér heima. Okkar bíður erfitt verkefni í ósam- stæöri stjórnarandstööu andspænis stjórn sem á ytra boröi sýnist sterk. Það bendir fátt til þess að þessi ríkisstjórn veröi launa- fólki hliöhollari en hin fyrri, hvaö þá aö ein- hverjar grundvallarbreytingar muni eiga sér staö. Bankamáliö er fyrsta vísbending- in um hvers konar valdasúpa þar er á ferö. Því er brýnt aö halda uppi snarpri, hressilegri stjórnarandstööu sem hvergi skirrist við aö sýna í hvers konar samfélagi viö búum, hverjir ráöa för og hvernig viö viljum hafa þaö ööru vísi. Ábyrgö okkar er mikil, gagnvart íslensk- um konum og konum heimsins. En hér gagnast best þaö sem viö höfum gert hing- að til, aö hlusta á okkar innri rödd og hlýða eigin sannfæringu. Minnast þess aö við erum aö fara nýjar leiöir, sem ekki hafa verið kannaöar áöur af konum. Mikilvæg- ast er aö horfa á heiminn af sjónarhóli kvenna, þaöan sem sér vítt um veröld alla, þaðan sem lífiö blasir viö í öllum sínum fjöl- breytileika, þaðan sem hægt er að meta hvaö er lífvænlegast, réttlátast og mann- úðlegast. Kristín Ástgeirsdóttir FRÁ HEILSURÆKT Sóknar Skipholti 50A, Reykjavík TAKIÐ TIL HENDINNI Heilsurækt Sóknar er i fullum gangi OG ÖLLUM OPIN! ★ Ný líkamsræktartæki til endurþjálfunar ★ Heitir leirbakstrar ★ MA Professional Ijósabekkur meö andlitsljósum ★ Likamsnudd ★ Vatnspottur og gufubaö ★ Karlatímar á föstudögum kl. 15—19.00 Opiö virka daga frá 9.00 til 21.00 Hittumst hressar og kátar. Sjón er sögu rikari! Timapantanir í síma 84522. Eftirtaldar verklegar greinar eru í boöi á haustönn 1987: Fatasaumur, Myndbandagerð, Myndmennt, Postulínsmálun, Skrautskrift og Leöursmíði (sem hefst um miöjan október). Nýjar greinar: Bókband og Aö gera upp hús- gögn hefjast upp úr miðjum október. FUNDARSALUR SÓKNAR, AÐ SKIPHOLTI 50A, REYKJAVÍK er leigöur félagasamtökum og einstaklingum til fundarhalda og samkomuhalds. Sæti fyrir 200 manns. Upplýsingar gefur húsvörður í síma 688175. Innritun í Miöbæjarskóla eöa í símum 14106 og 12992. 29

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.