Vera - 01.10.1987, Side 30

Vera - 01.10.1987, Side 30
Ljósmynd: bb Stjórnarmyndunarviðræður Þegar gengiö er til viöræöna vegna ríkis- stjórnarmyndunar er vart hægt aö gera ráö fyrir því aö allar kröfur verði samþykktar. í slíkum viöræöum er reynt aö komast aö samkomulagi um leiöir ef aðilarnir sem taka þátt í viðræðun- um eru sammála um markmiðin. Fögur orð um góöan vilja duga skammt og vildu Kvennalista- konur aö gerö yröi skýr áætlun um þaö hvernig væntanleg ríkisstjórn mundi fara að því að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu. Stjórnarmyndunarviðræöur Kvennalistans snerust að mestu leyti um að hækka lægstu launin, en vitanlega var fjallað um fleiri málefni. Hagfræðingar hinna ýmsu stofnana reiknuðu út ýmsar stærðir varðandi breytingar á tekjuskiptingu, en að öllu jöfnu var niðurstaðan sú sama: Það er lítið sem ekkert hægt að gera til úrbóta, a.m.k. ekki strax. Og hvers vegna ekki spyrja eflaust margir. Jú ástandið í ríkisbúskapnum er svo slæmt sögðu þeir og það vissum við reyndar líka. Kvennalist- inn setti hins vegar fram ýmsar tillögur til tekjuöflunar eins og t.d. um stóreignaskatt, auðlindaskatt, virkara skattaeftirlit og fleira. Tillögur okkar hlutu lítinn hljóm- grunn. Þegartil kom þá vantaði viljann. Hagfræðingar ASi og VSÍ þeir Björn Björnsson og Vilhjálmur Egilsson slógu samt öllum við þegar þeir tveir settu fram „sína persónulegu“ skoðun á því hvort gerlegt væri að lög- binda lágmarkslaun í landinu. Þar þurftu þeir að fara 3000 ár aftur í tímann til að sýna fram að það hefðu bara alltaf verið svona launahlutföll og þannig yrði það að vera. Það var vissulega lærdómsrikt að ganga í gegnum þetta tímabil þegar Kvennalistinn tók virkan þátt í stjórn- armyndunarviðræðunum. Eftir aö rikisstjórn Þorsteins Pálssonar var mynduð hafa allmargir haft orð á því við Kvennalistakonur að þeir hefðu gjarnan viljað sjá Kvennalistann í ríkisstjórn, þá heföu hlutirnir verið öðruvísi. Á því er enginn vafi að Kvennalistinn hefði aldrei skrifað undir plagg einsog þá starfsáætlun sem núverandi ríkisstjórn hefur sett fram. Þegar Kvennalistinn fór til viðræðna við hina flokkana var þeim strax gerð grein fyrir því að það væru ákveðin grundvallarmálefni sem ekki yrði „verslað" með. Við gerðum okkur fulla grein fyrir því að ekki yrði hægt að fá öll skilyrði okkar fram, en Ijóst var að konur töldu ekki unnt að fara í ríkisstjórn án þess að bæta kjör hinna lægstlaunuöu. Auk þess var lögð rík áhersla á umhverf- ismál, skólamál, húsnæðismál, valddreifingu og utan- ríkismál. í stjórnarmyndunarviðræðunum í vor lögðu Kvenna- listakonur fram tillögu að málefnagrundvelli fyrir vænt- anlega ríkisstjórn. Ennfremur var lögð fram tillaga að markmiðum ríkisstjórnarinnar, þar sem fram koma meginmarkmið okkar í ríkisstjórnarsamstarfi. Málefna- grundvöllurinn var vel undirbúinn og er að sjálfsögðu byggður á þeirri stefnuskrá sem Kvennalistinn setti fram fyrir kosningarnar í vor. Hann birtist í heild sinni hér á eftir sem og tillaga okkar að meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar. Rétt er að ítreka það hér að málefna- grundvöllurinn var ekki settur saman af fámennum hóp heldur tóku margar konur þátt í starfinu. Það kom skýrt fram í allri umræðu í tengslum við stjórnarmyndunarviðræðurnar að Kvennalistakonur alls staðar á landinu töldu að meginverkefni nýrrar ríkis- stjórnar ætti að vera að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu i þjóðfélaginu og einnig að leggja sérstaka áherslu á að bæta stöðu kvenna. Ekki tókst að þessu sinni aö ná samstööu með neinum um þessi verkefni þannig að ekkert varö af því að Kvennalistinn færi i ríkisstjórn í þetta sinn.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.