Vera - 01.10.1987, Page 32
landi með byggðasjónarmið í huga. Fiskur verði
ekki fluttur óunninn úr landi, meðan vinnslustöðv-
ar eru verkefnalausar.
3) Bónus í fiskvinnslu verði afnuminn, kjör fisk-
vinnslufólks bætt og atvinnuöryggi tryggt.
Landbúnaður
1) Lokiö verði gerð jarðabókar og gerð áætlun um
nýtingu landsins m.t.t. landgæða og nýtingar.
2) Þak verði sett á stærð búa, tillit tekið til hlunninda
og framleiðsla landbúnaðarafurða verði bundin við
lögbýli.
3) Kaupum á fullvirðisrétti jarða veröi hætt.
4) Ríkissjóður kaupi jarðir einkum í jaðarbyggðum ef
bændur vilja hætta búskap þar.
5) Aukin verði úrvinnsla landbúnaðarafurða sem
næst framleiðslustað og áhersla lögð á fullvinnslu.
6) Endurskoða þarf sjóðakerfi landbúnaðarins,
draga úr yfirbyggingu og miðstýringu í landbúnaði
og fækka milliliðum.
Iðnaður
1) Efla þarf matvælaiðnað, endurvinnsluiðnað og
léttan iðnað, m.a. með því að bjóða afgangsorku á
hagstæðu verði.
2) Eflaþarf ferðaþjónustu, þarsem lögð verði áhersla
á bætta aöstöðu til móttöku ferðamanna um allt
land og verndun dýrmætrar náttúru landsins.
3) Látið verði af frekari stóriðjuáætlunum og virkjana-
framkvæmdum tengdurn þeim. Stóriðjunefnd
verði lögð niður.
IV Byggðamál
1) Leita þarf leiðatil aðhaldafjármagni í heimabyggð
í ríkara mæli en nú er og tryggja stöðugleika at-
vinnulífs og þjónustu á landsbyggðinni.
2) Staðið verði við framlög til Jöfnunarsjóös sveitar-
félaga.
3) Unnið verði markvisst að uppbyggingu flugvalla,
vega og hafna á landsbyggðinni.
4) Sama gjaldskrá verði tekin upp innan hvers svæð-
isnúmers Pósts og síma. Opinberar stofnanir verði
settar á landsnúmer. Leita þarf sambærilegs jöfn-
uðar milli dreibýlis og þéttbýlis varðandi orku-
kostnað og vöruverð.
5) Gera skal fólki kleift að hafa bein áhrif í lands- og
sveitarstjórnarmálum. Auka þarf rétt þess til um-
fjöllunar og atkvæðagreiðslu um einstök sveitar-
stjórnarmálefni sem og landsmál.
6) Ríkisútvarpið komi áfót svæðisbundnum útvarps-
stöðvum um allt land.
V Umhverfismál
1) Sett verði heildarlöggjöf um umhverfismál og kom-
ið á fót sérstöku ráðuneyti umhverfismála. Ekki
verði um aukna starfsemi að ræða, heldur safnað
undir einn hatt stofnunum og verkefnum, sem nú
heyra undir hin ýmsu ráöuneyti og samráð tryggt
á öllum sviðum umhverfismála.
2) Gerð verði áætlun um nýtingu landsins, sem tekur
fyrst og fremst mið af varðveislu og endurheimt
landgæða.
3) Tekin verði upp markviss umhverfisfræðsla.
VI Heilbrigðis- og félagsmál
1) Leggja þarf megináherslu á fyrirbyggjandi heilsu-
vernd. í því felst m.a. aukin heilbrigðisfræðsla
meðal almennings og í skólum. Jafnframt verður
að gera fólki efnahagslega og félagslega kleift að
velja sér heilsusamlega lifnaðarhætti.
2) Standa þarf við það meginsjónarmið laga um
heilbrigðisþjónustu að hún sé öllum aðgengileg,
óháð tekjum. Sporna þarf við einkarekstri í heil-
brigðisþjónustu sem leitt geti til mismununar.
3) Gera þarf stórátak i geðheilbrigðismálum barna og
unglinga.
Málefni fatlaðra
1) Ákvæðum laga um fatlaða verði framfylgt og tryggt
að fé til framkvæmdasjóös fatlaðra verði ekki
skert, né heldur það fé sem þeim ber úr erfðafjár-
sjóði.
2) Þjónustu við fatlaða þarf að veita í heimabyggð.
Þegar ekki verður hjá því komist að sækja annað
og sérstaklega ef fötlun veldur búseturöskun þurfa
tryggingar að mæta þeim kostnaði.
Málefni aldraðra
1) Tryggja skal nægjanlegt fjármagn til að framfylgja
ákvæðum laga um aldraða.
2) Öldruðum sem búa í heimahúsum þarf að tryggja
heimahjúkrun og heimilishjálp, auk reglubundinn-
ar skoðunar. Endurskoða þarf kostnaðarskiptingu
ríkis og sveitarfélaga hvað varðar þessa þjónustu.
Ofbeldi
1) Rekstur Kvennaathvarfsins í Reykjavík verði
tryggður með nægjanlegu fjármagni.
2) Koma þarf upp neyðarmóttöku fyrir börn sem hafa
verið beitt ofbeldi og veita þeim og fjölskyldum
þeirra aðstoð.
3) Fræða þarf fólk sem vinnur með börn og unglinga
um áhrif ofbeldis á börn til að geta brugðist við
þegar slíkt kemur upp.
4) Staða barna verði styrkt með því að stofna
embætti barnamálsvara sem gæta skal réttar og
hagsmuna barnsins í öllum málum bæði gagnvart
foreldrum og stjórnkerfi.
5) Stöðva þarf sölu og útbreiðslu á klámi eins og lög
gera ráð fyrir.