Vera - 01.07.1990, Blaðsíða 7
algengar kvartanir fólks með
óþolsbæklun:
Höfuðverkjaköst með æðaslætti,
stundum sjóntruflunum og
ógleði: Mígren.
Einbeitingarskortur, þrekleysi,
kvíði.
Vöðvaeymsli, vöðvaverkir.
Lofthungur, andþyngsli, án
lungna- eða hjartasjúkdóms:
Oföndun.
Hjartsláttarköst, hjartsláttaró-
regla.
Brjóstsviði, stundum samfara
verkjum undir bringubeini.
Hægðatruflanir: Niðurgangur
og/eða hægðatregða með vind-
gangi og stundum kveisu.
Kláði í endaþarmi.
Liðverkir án bólgu.
Kláðapirringur í húð.
Bjúgþroti.
Allar lífverur þurfa að geta
varðveitt sérkenni sín og innra
jafnvægi gegn ytri áhrifum.
Ónæmiskerfið sér um þann þátt
þessara jafnvægisviðbragða, sem
miðar að því að vernda dýr gegn
óhóflegri röskun af völdum ör-
Ljósmynd: Anna Fjóla
vera og annarra framandi lífefna-
sambanda, sem sækja að líkama
þeirra. Ónæmiskerfið annast líka
eyðingu á gömlum aflóga frum-
um, og margir telja að það hafi
áhrif á vöxt heilbrigðra og af-
brigðilegra frumna og þar með út-
breiðslu krabbameins. Margvís-
legir sjúkdómar eiga rætur að
rekja til truflana í ónæmiskerfinu,
og má skipta þeim í 4 flokka:
Ónæmisbilanir, ofnæmi, sjálfs-
ofnæmi og æxli.
Ónæmiskerfið hefur eins og
fyrr segir það hlutverk að bægja
framandi efnum frá líkamanum
og útrýma þeim, sem inn í hann
komast. Þessari starfsemi getur
fylgt talsvert umrót, sem virðist
þó vera mjög einstaklingsbundið.
Ofnæmi er það kallað þegar þetta
umrót verður meira en efni
standa til. Mislingaútbrot eru
dæmi um eðlilegt umrót sem
verður þegar ónæmiskerfið ræðst
gegn mislingaveirunni. Barn með
bilað ónæmiskerfi getur dáið úr
mislingum án þess að það fái
nokkur útbrot. Útbrotin orsakast
sem sagt ekki af veirunni sjálfri
heldur því umróti sem hlýst af því
að ónæmiskerfi líkamans útrýmir
henni.
Efni í umhverfi okkar hafa mis-
jafnlega mikla tilhneigingu til
þess að orsaka ofnæmi eftir því
hversu auðveldlega þau komast
inn í líkamann eða tengjast vefj-
um hans. Eru sum efni svo virk að
þessu leyti, að allir sem komast í
snertingu við þau fá meiri eða
minni ofnæmiseinkenni. Þannig
hafa t.d. ofnæmisskemmdir í
lungum af völdum örvera í heyi
verið afar algengar í íslenskum
7