Vera - 01.07.1990, Blaðsíða 9

Vera - 01.07.1990, Blaðsíða 9
MÍGREN ER EINS OG FARG YFIR MANNI ÖLLUM Norma E. Samúelsdóttir er móðir þriggja barna, höfundur þriggja bóka og mígrensjúklingur frá unglingsaldri. Fyrir nokkrum ár- um rakst hún á bæklinga frá sam- tökum breskra mígrensjúklinga og komst að því að hún var ekki ein um þessi óþægindi. hessi upp- götvun varð til þess að hún skrif- aði fróðleik um sjúkdóminn í Dagblaðið og í lok greinarinnar bað hún fólk urn að „bara stofna félag“. Hún bjóst svosern ekkert við að úr því yrði, en fjöldi fólks hafði samband við hana og Mígrensamtökin voru stofnuð árið 1978. Norma haltrar fram í eldhús og nær okkur í te. Hún er að koma úr Hveragerði, þar sem hún hvíldi sig eftir mikinn mjaðmaskurð. — Það var skipt um lið í mjööminni, það er oft gert á fólki um áttrætt, segir hún og kernur sér fyrir í sófanum með prjónana. Iðjusemi er eðli mígrensjúklinga sem iöulega gera ótal hluti í einu. Fyrsta mígrenkastið fékk Norma á ferðalagi um Ítalíu þegar hún var átján ára. — Ég hafði borðað heilt kíló af vínberjum, en Jrá skildi ég ekki samhengið milli fæðu og heilsu. Svo vaknaði ég um nóttina, sá ekkert og ældi þessi ósköp. Okkur var hent út af farfuglaheimilinu og það þurfti að fara með mig á hótel, þar sem ég lá í meira en sól- arhring. Svo liðu nokkur ár og einu sinni þegar ég var á síld og var búin að standa upp á endann í sólarhring varð mér svona illt í augunum. Það var farið með mig til læknis og ég fékk róandi töflur. Köstin fóru svo að koma tíðar. Ég valdi mér vinnu eins og frysti- húsavinnu þar sem rnaður gat ver- ið veikur einn og einn dag. Það var ekkert amast við því. Svo vann ég á skrifstofum og á einni fékk ég t.d. tímakaup og þá voru þeir tímar þegar ég var veik dregnir af mér. Ég varð alltaf veik þegar eitthvað stóð til. Það end- aði með að ég varð sérvitringur, fór aldrei neitt. Það var ekkert til- hlökkunarefni að fara út að skemmta sér þegar rnaður varð alltaf veikur. Ég hafði það á til- finningunni að fólki fyndist þetta vera fyrirsláttur, maður var alltaf svo frískur og hress, en svo þegar eitthvað stóð til veiktist maður. En mínir nánustu sáu aö þetta var engin uppgerð, þó að þeir skildu ekki sjúkdóminn. A þessurn tíma var ákaflega lítið vitað um rnígren og margir litu á þennan dæmigerða kvennasjúk- dóm sem móðursýki. í dag er fólk dálítið fróðara um sjúkdóminn og Norma E. Samúelsdóttlr er móöir þriggja barna, höfundur þriggja bóka og mígrensjúklingur fró unglingsaldri. Ljósmynd: B.Á. þeir sem af honum þjást reyna með ýmsum aðferðum að losa sig við hann. — Ég hef prófað allt milli him- ins og jarðar, segir Norma. Ef ein- hver minnist á að eitthvað hafi gert einhverjum gott, þá prófa ég það. Ég nota útilokunarieiðina, hef látið mynda höfuðið, farið í nálarstungu og svæðameðferð, breytt mataræði, en leitin byrjaði hjá augnlækni, því að sjónin dofnaði í köstum. Blessaðir lækn- arnir, þeir geta svo lítið sagt við konu í mígrenkasti. Þeir ráðlögðu mér að synda og fara út að ganga, en það er það versta sem ég geri þegar ég er að fá kast. Á tímabili prófaði ég öll vítamín við þessu. Það er nú einhvern veginn þannig að þegar maður er svona lasinn leiðist maður dálítið út í dul- hyggju. Égskrifaði Einari á Einars- stöðum og leitaði ýmissa miðla. En það er eins og allt verði að hafa sinn gang. Mér hefur alltaf liðið illa af lyfjum sem maður tekur í köstum til að vfkka út æðarnar. Mér finnst eins og allar æðar séu að springa. Nú tek ég fyrirbyggj- andi lyf og líður ágætlega af þeirn. Það er svo erfitt að útskýra þenn- an verk, það er eins og hann sé ekki bara f höfðinu, heldur er eins og farg yfir manni öllum. Það er ekki hægt að greina sundur lík- ama og sál. 9

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.