Vera - 01.07.1990, Qupperneq 24

Vera - 01.07.1990, Qupperneq 24
FJÖLMIÐLAR Á FORSENDUM KVENNA ÞRJÁR FJÖLMIÐLAKONUR RÆÐA MÁLIN Hvaö er frétt? Hvernig er fréttin matreidd? Eru fjöl- miölar kvenfjand- samlegir vinnustaö- ir? Þetta og margt fleira ber á góma hjá Sigrúnu Stefáns- dóttur, Magdalenu Schram og Hildi Jónsdóttur. Engum heilvita manni dettur í hug að skrifa grein og taka viðtöl undir yfirskriftinni Karlar og fjölmiðlar. Ekkert frekar en að skrifa um efnið Karlar og atvinnu- lífið. Á hinn bóginn skýtur við- fangsefninu Konur ogfjölmiðlar oft upp. Ástæðan er einföld. A fyrstu árum kvennahreyfingar- innar nýju var hlutur kvenna inn- an fjölmiðlanna ennþá hverfandi og miklum kröftum var beint að því að afhjúpa hvaða mikilvæga hlutverki fjölmiðlar gegndu í því að viðhalda niðurlægjandi kyn- hlutverkum kvenna. Konur voru orðnar leiðar á því að lesa skrif karla um hvernig konur voru inn- réttaðar til sálar og líkama, félags- lega og pólitískt, og hvernig þeim bar eða ekki bar að vera. Veruleiki þeirra var annaðhvort ekki á dag- skrá eða skrumskældur í góðsemi eða háðungarskyni. Lágmarks- krafa var að leyfa konum að minnsta kosti að tala máli sínu sjálfar. Þá kom að því að konur knúðu á dyr fjölmiðlanna og sögðu: Megum við vera með? En meira hefur gerst. Núna láta þær sér ekki nægja að biðja leyfis held- ur fullyrða: Við eigum að vera með. Bæði sem starfsmenn fjöl- miðlanna og sem viðmælendur. Það er af því að konur krefjast þess af fjölmiðlunum að í staö þess að endurspegla eingöngu mismunandi skakka mynd karla af konum og þeirra raunveru- leika, ef þeir á annað borð muna eftir þeim, þá þjóni þeir konum og þörfum þeirra á lífsins marg- brotnu sviðum, verði tæki fyrir konur að skilja sinn eigin raun- veruleika, þarfir og möguleika. A síðustu árum hefur fjöldi kvenna sem starfar við fjölmiðl- ana farið hraðvaxandi. Sá vísir aö menntun á sviði fjölmiðla sem sprottið hefur upp í Háskólanum og í fjölbrautaskólunum dregur til sín konur að miklum meirihluta. Því bendir allt til að hlutur þeirra haldi enn áfram að vaxa. Eins og á öðrum sviðum þjóðfélagsins þar sem karlar hafa samið leik- reglurnar og gefið spilin reka kon- ur innan fjölmiðlanna sig á hindr- anir sem felast í því hvernig vinn- an er skilgreind og hvaða aðstæð- ur eru búnar starfsmönnunum. Um leið og konur og fjölmiðla ber á góma er stutt yfir í gagnrýni á ríkjandi fréttamat í fjölmiðlum, bæði íslenskum og erlendum. Spurt er Hvað er frétt og líka Hvernig er fréttin matreidd. Hverjum er sjálfkrafa gefið um- boð til að skilgreina og tjá þjóð- inni hver hagur hennar sé og hverjar séu þarfir atvinnulífsins meðan brýnustu þarfir annarra þegna eiga sjaldan upp á pall- borðið? Af hverju er næstum hver tittur í sjó fréttaefni en vellíðan barna og öryggi þeirra lítt merki- legt til frásagnar? Þegar meta á hlut kvenna í fjöl- miðlum er ein aðferðanna sú að telja saman hve oft er talað við konur. í maflok birti Jafnréttisráð niðurstöður könnunar sem gerð var í mars á hlutfalli kvenna í við- mælendahópnum í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna beggja. (Og þótti ekkert ýkja fréttnæmt í fjöl- miölum.JHann var 12,5%oghef- ur tekið litlum breytingum frá því að mælingar hófust, var reyndar ívið minni núna en stundum áð- ur. í mælingavikunni stóðu álvið- ræður yfir og kann skýringarinn- ar að vera að leita þar, því konur eru lítt sjáanlegar í hétpi álfursta, stjórnmálamanna, hagsmunaað- ila og annarra þeirra sem glíma við ,,alvörumálin“ í þjóðfélaginu eins og þau virðast skilgreind af fjölmiðlunum En eru ekki alltaf einhverskonar álmál í gangi? Ef l|1 ■ 1 r aKm i ' ■ * ■ *J ekki ál þá fiskur, ef ekki fiskur þá endalausir aðalfundir, ef ekki þeir þá eitthvað enn annað þar sem konur eru úti í horni. Þetta og margt fleira ber óhjá- kvæmilega á góma þegar þrjár konur sem allar hafa meira eða minna starfað á vettvangi fjöl- miðla hittast til að fjalla um konur og fjölmiðla. Þær eru Sigrún Stefánsdóttir doktor í fjölmiðla- fræðum, dagskrárgerðarmaður og starfandi fréttamaður á Sjón- varpinu, Magdalena Scfíram sem bæði hefur starfað sem blaðamað- ur, ritstjóri og dagskrárgerðar- maður og situr núna í útvarpsráði og Hildur Jónsdóttir fjölmiðla- fræðingur. Ómálaefnalegt innskot: Hafið þið tekið eftir því hvað konur eru hikandi við að nota titlana sína? Og að þegar karlar nefna þá er það oft í háðungarskyni? Skyldi Sigrún Stefánsdóttir oft hafa heyrt ávarpið doktor Sigrún í þeim tilgangi að móðga hana pent, eins og aðrar konur hafa sagt frá? Sigrún hefur sjálf gert svipaðar kannanir og Jafnréttisráð gerir nú reglulega á hlut kvenna í viðmæl- endahópi fjölmiðlanna. Þrátt fyr- ir niðurstöður síðustu könnunar finnst henni meiri ástæða til bjart- sýni nú en nokkru sinni fyrr. Sigrún: Ég get ekki sagt að skipulagt átak sé í gangi á mínum 24

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.