Vera - 01.07.1990, Page 33
Kvennalistakonur leggja til aö kannað
veröi hvernig tryggja megi aö fólk á
vinnumarkaöinum þekki réttindi sín.
í óbyggðum með því að samræma og setja regl-
ur og lög eftir því sem við á og með því að
skipuleggja fræðslu ráðgjöf og upplýsingar til
ferðafólks. Tillagan var samþykkt í febrúar og
voru meðflutningsmenn að tillögunni úr öllurn
flokkum.
Þá eru það loks tillögurnar tvær sem var vís-
að til ríkisstjórnarinnar á síðustu dögum þings-
ins. Það er annars vegar tillaga um réttindi og
skyldur á vinnumarkaði þar sem lagt er til að fé-
lagsmálaráðherra verði falið að skipa sérstaka
nefnd er kanni ýmis atriði er varða hvernig
tryggja megi að fólk á vinnumarkaðnum j->ekki
réttindi sín og skyldur og hvernig tryggja megi
einstaklingum er starfa sem verktakar sambæri-
leg kjör og öðrum launþegum. Hins vegar var
tillögu Kvennalistann um skipulega fræðslu og
leiðsögn fyrir útlendinga sem taka sér búsetu á
íslandi vísað til ríkistjórnarinnar sem Alþingi
hefur þar með falið að sjá um að útlendingar
sem taka sér búsetu á ísland hljóti skipulega
fræðslu og leiðsögn m.a. um réttindi og skyldur
íslenskra þjóðfélagsþegna og um íslenska þjóð-
félagið og helstu stofnanir þess.
Þar með er þessari yfirferð lokið og vonandi
eru lesendur Veru einhverju nær um starfið á
Alþingi sl. vetur ef frekari upplýsinga er vel-
komið að leita til starfskvenna Kvennalistans.
S.J.
KVÓTIN N
í VITLAUSRI HÖFN
„Nytjastofnar á íslandsmiðum eru
sameign íslensku þjóðarinnar. Mark-
mið laga þessara er að stuðla að vernd-
un og hagkvæmri nýtingu þeirra og
tryggja með því trausta atvinnu og
byggð í landinu.
Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt
lögum þessum myndar ekki eignarrétt
eða óafturkallanlegt forræði einstakra
aðila yfir veiðiheimildum.“
Þannig hljómar 1. gr. laga um stjórn-
un fiskveiða, sem samþykkt voru rétt
fyrir þinglok í vor. Um þetta gátu menn
orðið almennt sammála, en um leiðir að
þessu göfuga markmiði eru heldur bet-
ur skiptar skoðanir, og sú niðurstaða,
sem birtist í lögunum, er því miður
býsna langt frá hugmyndum Kvenna-
listakvenna.
Frá því í ágúst 1988 og allt til loka janúar á
þessu ári vann fjölmenn nefnd fulltrúa þing-
flokka og hagsmunaaðila í sjávarútvegi að til-
lögum til breytinga á stjórnun fiskveiða. Þegar
þessi stóra nefnd loks skilaði af sér fluttist rifr-
ildið og togstreitan inn í þingsali og tók þar
drjúgan tíma allt fram á síðasta dag þingsins. Og
enn eina ferðina lenti kvótinn í vitlausri höfn
að okkar dómi.
Unnur Steingrímsdóttir var fulltrúi Kvenna-
listans í ráðgjafanefndinni svokölluðu og
Kristín Halldórsdóttir til vara. Þær skiluðu sér-
áliti við starfslok nefndarinnar, þar eð hug-
myndir og tillögur Kvennalistans náðu engan
veginn fram að ganga. Þær fengu þó miklu betri
undirtektir nú en síðast þegar stjórnun fisk-
veiða var til umfjöllunar fyrir hálfu þriðja ári,
enda afleiðingar hennar orðnar mörgum ljósar,
þar sem fólk hefur víða mátt horfa á eftir at-
vinnu sinni vegna geðþóttaákvarðana „eig-
enda" kvótans.
Kvennalistakonur unnu áfram með hug-
myndir sfnar inni á Alþingi, en eins og lesendur
ef til vill muna höfum við lagt áherslu á að
,, . . . rjúfa það óeðlilega samband, sem nú er
milli skips og veiðiheimilda, að taka tillit til
byggðasjónarmiða, að draga úr ofstjórn og
miðstýringu, að efla rannsóknir, að hvetja til
bættrar nýtingar og bættrar meðferðar sjávar-
aflans og búa betur að fólki í sjávarútvegi“, svo
að vitnað sé beint í nefndarálit Danfríðar
Skarphéðinsdóttur við afgreiðslu málsins í efri
deild.
Kvennalistakonur lögðu fram endurbættar
tillögur sínar til breytinga á frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar, felldu þær inn í frumvarpið og
birtu sem fylgiskjal með nefndaráliti Danfríðar.
Þar kemur því fram heilleg mynd af því, hvern-
ig framkvæmd mála væri, ef tillögur okkar
hefðu verið samþykktar. Þær sem vilja kynna
sér hugmyndir okkar og tillögur betur ættu
endilega að hafa samband við Sigrúnu eða
Kristínu á þingflokksskrifstofunni í síma 91-
11560 og fá þetta þingskjal sent.
K.H.
BREIÐHOLTS
r
ÁLFABAKKA 12
APOTEK
33