Vera - 01.07.1990, Side 39

Vera - 01.07.1990, Side 39
HEÐAN OG ÞAÐAIV HEILBRIGÐI FRÁ GETNAÐI TIL GRAFAR var yfirskrift tveggja daga ráð- stefnu sjúkraþjálfara sem hald- in var í vor. Megininntak þess- arar ráðstefnu var það að hver og einn ber ábyrgð á eigin lfk- ama. Mikill fjöldi erinda var fluttur og fjölluðu þau um lífið og líkamann undir nær öllum kringumstæðum frá getnaði til grafar. Þar má nefna erindi um fæðinguna og nýfædda barnið, um íþróttir og skólakerfi, vinnustaði og slitsjúkdóma, reykingar, mataræði, geð- heilsu, almenningsíþróttir og efri árin. Ráðstefnan sem hald- in var í tilefni af 50 ára afmæli félags sjúkraþjálfara var mjög vel sótt. Um 230 þátttakendur voru skráðir, mest sjúkraþjálf- arar og annað fólk úr heil- brigðisstéttum, en einnig sáust þarna einn og einn stjórnmála- maður. Þótti Jiað vel við hæfi því stjórnvöld stefna einmitt að heilbrigði handa öllum árið 2000. VIÐHORF REYKVÍSKRA FORELDRA TIL DAGVISTUNAR Undanfarna mánuði hafa For- eldrasamtökin kannað viðhorf foreldra í Reykjavík til nokk- urra þátta dagvistaþjónustu. Um er að ræða víðfeðma rann- sókn sem tekur til flestra for- eldra barna á aldrinum 1—5 ára. Fyrsti hluti rannsóknar- innar fór fram í febrúar á þessu ári og nú eru niðurstöður úr þeim hluta ljósar. Þessi fyrsti hluti rannsókn- arinnar tekur til foreldra tveggja ára barna. Alls náðu Foreldrasamtökin sambandi við 925 foreldra og reyndust 520 Jíeirra hafa reynslu af dag- mæðraþjónustu og 314 þeirra eða 60% lýstu þeirri reynslu sem góðri eða rnjöggóðri. 388 sögðust nota þjónustu dag- vistaheimila en 424 ekki. Ein- ungis 578 vildu svara spurn- ingunni um hvort sú þjónusta væri fullnægjandi og töldu 263 eða 55% svo vera. Foreldrarnir voru lfka spurðir að því á hvaða aldri barnsins J?eir myndu vilja byrja að nýta sér dagvistarrými og hve lengi dags þeir vildu hafa börnin Jiar. Það vekur at- hygli að meirihluti foreldra (54.8%) vill ekki nema 4—5 tíma dagvistaþjónustu og jafn stór hluti foreldra (55%) vill ekki nota dagvistaheimili nema frá 1.5—2.5 ára aldri barnsins. Þess ber J?ó að geta að oröalag spurninganna í J^essum hluta rannsóknarinnar er með Jieim hætti að svörin gefa e.t.v. betri mynd af óskum fólks en þörfum. KYNJAMUNUR Á HVÍTA TJALDINU Kvikmyndatónlist er tónlist tilfinninganna. Hún segir okk- ur hvað við eigum að sjá og heyra og hvað okkur eigi að finnast um J^að sem við sjáum og heyrum á hvíta tjaldinu. Tjáningaraðferð kvikmynda- tónlistarinnar er svo stööluð að til eru á skrám upptökur meö sérstakri tilfinninga- eða stemmningartónlist fyrir allar aðstæður. En hvaða stöðluðu ímyndir eru notaðar til að lýsa körlum og konum með kvikmynda- tónlist? Tónlistarfræðingurinn Philip Tagg segir að til séu þrjár aðferðir til að lýsa konum: Hinni ungu, mjúku og fögru konu er lýst með einfaldri tón- list. Þegar hún birtist á hvíta tjaldinu heyrum við fallegar laglínur spilaðar á flautu eða píanó. Blóðsugur næturklúbb- anna eru í fylgd hæggengra jazztóna og saxófóns. En lang- stærstur er hópur kvenna sem birtast undir rómantísum að- stæðum í rómantísu umhverfi. Undir nærveru þeirra eru leiknar mikilfenglegar rnelódí- ur með rómantískum sam- hljómum á strokhljóðfæri. Karlhetjunum er yfirleitt lýst með háværri tónlist. Þegar hetjan birtist er spilað á tromp- et eða horn sem hoppa yfir heilu áttundirnar til að leggja áherslu á Jiá spennu og kraft sem býr með karljijóðinni. Hornið er tákn karlmannlegs hetjuskapar, jafnt í tónlist 19. aldar sem í kvikmyndatónlist nútímans. KVENNA- RANNSÓKNIR í HÁSKÓLANUM Dagana 26. aprfl til 4. maí sl. var haldin smiðja (workshop) í kvennafræðum og kvenna- rannsóknum á vegum Áhuga- hóps um íslenskar kvenna- rannsóknir. Leiðbeinandi var Margreat Stacey prófessor í félagsfræði við Warwick há- skólann í Bretlandi. Þátttak- endur voru 20 úr ýmsum fræðigreinum, s.s. sagnfræði, guðfræði, félagsráðgjöf, hjúkr- un, uppeldisfræði, stjórnmála- fræði og félagsfræði. Rædd var aðferða- og J?ekkingarfræði og við vorum ekki á eitt sáttar um hvort við getum notað hefð- bundnar aðferðir fræðigreina okkar, eða hvort við verðum að þróa nýjar aðferðir og leggja drög að nýrri þekkingar- fræði J?egar við gerum kvenna- rannsóknir. Nokkrir þátttak- endur kynntu það helsta sem um er að vera í kvennarann- sóknum í fræðigreinum þeirra og rætt var um hvað hægt er að gera til aö efla íslenskar kvennarannsóknir. Umræður voru fjörugar og skemmtilegar og kornið inn á margt. Að lok- um ákváðum við að vinna áfram sameiginlega í þverfag- legu verkefni, hvert verkefniö er kemur í ljós, en okkur vant- ar bókmenntafræðing og list- fræðing til liðs við okkur, svo eitthvað sé nefnt. Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir og Meg Stacey prófessor eiga þakkir skilið fyrir gott framtak. VORHREINGERNINQ VERU Um daginn réöust Verukonur í þaö stórvirki aö taka til í kjallaranum. Nú liggja þar eintök af blaöinu frá upphafi í snyrtilegum stöflum. Þessi blöö 42 aö tölu fást á skrifstofu Veru aö Laugavegi M. Veröiö er aö- eins 2500 krónur. Nú er tœkifœriö aö eignast allar Verurnar. 39

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.