Vera - 01.12.1991, Qupperneq 3

Vera - 01.12.1991, Qupperneq 3
I RITSTJÓRARAUNIR Það hringir kona hingað á skrifstofu Veru og kvartar undan því að aldrei sé neitt skrifað í blaðið um sameiginlegt áhugamál allra kvenna — börnin. Næsta dag hringir önnur kona og segir blaðinu upp af þvi það sé eintóm lofgjörð til móðurhlutverksins. Ein kona lætur okkur vita að blaðið sé svo þungt, ekkert nema teoría og aldrei skrifað um venjulegar konur. Annarri finnst vanta fræðigreinar en allt of mikið vera skrifað um misáhugaverðar konur úti í bæ. Ein kvartar undan þvi að í blaðinu sé aldrei neitt nýtt, önnur segir umræðuna vera svo ferska að hún kasti sér yíir blaðið um leið og það kemur. Ein eys hástemmdu loíi yíir forsíðuna og önnur segir að lengra verði ekki komist í lágkúrunni en að birta slíka forsíðu. Getur verið að allar þessar konur hafi séð sama blaðið? Stundum dettur mér í hug að einhver athafnasamur ættingi prentvillu- púkans laumist í blaðið í prentsmiðjunni og sjái til þess að engin tvö eintök af sama tölublaði verði eins. En mikið íinnst mér samt jákvætt að íslenskar konur skuli ekki allar vera steyptar í sama mótið. Áður en ég byijaði að vinna á Veru hef ég sjálfsagt verið haldin öllum algengustu fordóm- unum í garð kvennahreyflngarinnar. Sennilega hef ég haldið að lesendur blaðsins væru einsleitur hópur kvenna í vaðmáli og sauðskinnsskóm. Ég hélt að ég þyrfti bara að skrifa innan ákveðins ramma og þá yrðu allir ánægðir. En nú veit ég að til eru feministar fylgjandi klámi og feministar á móti klámi, kven- réttindakonur með og á móti snyrtivörum, jafnréttissinnar and- vígir og fylgjandi barneignum og allar hugsanlegar aðrar skoðanasamsetningar. Þetta er jákvæða hliðin á kvennahreyflng- unni sem ég hef kynnst gegnum veru mína á Veru. Okkur í ritnefndinni langar að þessi íjölbreytileiki berist inn á síður blaðsins. En ég heflíka uppgötvað dálítið leiðinlegt. Ég hefkomist að því að ég var síljúgandi árin sem ég bjó í útlöndum. Þá var ég nefnilega iðin við að dásama samtakamátt íslenskra kynsystra minna. Ég sá að sænskar konur höfðu betra kaup, unnu minna og stóðu betur að vigi félagslega og lagalega, en samt gerði ég heilu útvarps- og sjónvarpsþættina um það hversu gott og gaman það er að vera íslensk kona. En eftir að ég flutti heim flnnst mér það ekkert sérlega gaman. Hvar er hinn rómaði samtakamáttur? Hvar er umburðarlyndið? Hvers vegna geta sumar konur ekki séð að leiðirnar að markinu eru margar og markmiðin misjöfn? Af hveiju einblína margar konur á eigin lausnir og fordæma allar aðrar? Guðrún Agnarsdóttir sagði einu sinni í Veruviðtali: „Við konur erum sjálfar að biðja um að okkar „öðruvísileiki" sé metinn jafngildur og það er jafn mikilvægt fyrir okkur að muna eftir þvi hver gagnvart annarri". Vera er fjölmiðill. Eðli fjölmiðils er að miðla sem ílestu til sem flestra. Hlutverk Veru hfýtur að vera að miðfa sem flestum sjónarmiðum um kvenfrelsismál til sem flestra kvenna og karla. „Já, en af hverju skriflð þið aldrei um bijóstastækkanir, fæðing- arþunglyndi, dauðann og dýravernd...? Af hverju birtið þið allt innsent efni, haflð þið enga ritstjórnarstefnu? Af hveiju birtið þið ekki ljóðið sem ég sendi? Af hveiju er greinin mín á biaðsíðu 39? Af hverju eru allar konur hrukkóttar á ijósmyndum í Veru? Af hverju, af hveiju...?“ Hvers vegna er Vera stöðugt undir smásjá? „Það stafar af þvi að kvennahreyfingin er komin í hugmyndafræðilegt þrot og vonbrigðin bitna á Veru“, segir ein vinkona mín. Það má vel vera, en mikið flnnst mér nú samt notalegt að flnna að fóiki er ekki sama hvernig blaðið er. Þvi ekkert er verra en afskiptaleysi. Björg Árnadóttir. nýhætt á Veru. V E R A DESEMBER Tíunda starfsári Veru er að ijúka. Við áramót er gjarnan litið um öxl og atburðir líðandi árs rifjaðir upp og litið fram á veg. Um mitt árið fóru fram miklar umræður um framtið Veru, þvi eins og allt of mörg íslensk fyrirtæki stendur Vera ekki undir sér. Þó uppi hafi verið raddir um að hætta útgáfunni varð niðurstaðan sú að halda ótrauðar áfram þvi að í raun hefur staða blaðsins aldrei verið betri þó herslumun vanti á að Vera sé efnahagslega sjálf- stæð. Vera er fátækur fjölmiðill þótt ýtrustu spar- semi sé gætt í hvivetna. Nú vinna tvær konur í hlutastarfl við blaðið og aðrcir tvær sjá um að setja og útlitshanna það. Það er ekkert launungamál að Vera er rekin meira og minna í sjálfboðavinnu. Á árinu skrifuðu rúmiega þrjátíu konur í blaðið, rneðal annars um skólamál, umhverfismál, erótík, fjölskyldumál, skapandi konur, bókmenntir og listir. Vera er skrifuð af konum fyrir konur. Konur prófarkalesa, teikna, taka myndir, hanna forsíðu, afla áskrifenda og safna auglýsingum. Og konur eru í miklum meirihluta áskrifenda. ingibjörg Sólrún Gísladóttir bendir á í grein sinni um velferðarkerfl karla fyrir konur, að konur eru ekki efnahagslega sjálfstæðir einstaklingar vegna þess hve laun þeirra eru lág. Blankheit kvenna bitna m.a. á Veru þvi að margar konur segjast ekki geta ieyft sér að kaupa blaðið. Það verður að snúa vörn í sókn, Vera þarfnast fleiri áskrifenda. Framtíð biaðsins ræðst af þvi. Ef þú lesandi góður hefur ekki efni á að kaupa blaðið hvernig væri að setja áskrift að Veru á j ólagj afaóskalistann? RV I ÞESSARI VERU: STÆLTAR STELPUR 9 STENDUR GÓÐMENNSKAN ÞÉR FYRIR ÞRIFUM 10 VELFERÐARKERFI KARLA FYRIR KONUR 12 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir NÚ VILJUM VIÐ FARA AÐ RÁÐA 16 OG STJÓRNA Borgarmálahópur Kvennalistans tekinn tali LISTRÆN LJÓSMYNDUN 20 Viðtal viö Björgu Arnarsdóttur JÓLIN - EINFALT MÁL 24 ... og margt fleira 3

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.