Vera - 01.12.1991, Blaðsíða 19
Hollráð
Ætlar þú að veita
veðley fi í þinni íbúð ?
Hafðu þá í huga, að veðleyfi jafngildir í raun ábyrgð á viðkomandi láni. Ef lántakandinn
greiðir ekki af láninu, þá þarft þú að gera það. Getir þú það ekki, gæti svo farið
að þú misstir þína íbúð á nauðungaruppboð, því standi skuldari ekki í skilum
■ er andvirði íbúðar þinnar notað til að greiða lánið.
GETUR ÞÚ GREITT AF LÁNINU EF LÁNTAKANDINN GETUR ÞAÐ EKKI ?
Við leggjum til að þú fylgir þeirri reglu að veita aldrei öðrum veðleyfi í íbúð þinni fyrir
láni sem þú getur ekki sjálfur greitt af, nema þú sért viss um
að lántakandinn muni standa í skilum.
FÓLK HEFUR MISST ALEIGU SÍNA VEGNA VINARGREIÐA
CHÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS
Nadine Gordimer
SAGASONAR MÍNS
Þetta er nýjasta bók suður-afrísku skáldkonunnar Nadine Gordimer. Hún segir
frá lífi þeldökkrar fjölskyldu sem markað er af baráttu gegn aðskilnaðarstefnunni.
Sögumaður er drengur á unglingsaldri sem kemst að því að faðir hans á í
ástarsambandi við hvíta konu. Því fylgja margvísleg átök í einkalífi og stjóm-
málabaráttu. I bókinni tvinnast saman frásögn af ástandinu í Suður-Affíku og saga
um ást — ást karlmanns á tveimur konum, ást föður og sonar og frelsisástina.
Nadine Gordimer hefur skrifað skáldsögu sem hefur bæði sögulega og sál-
fræðilega skírskotun, og er um leið mögnuð ástarsaga. Hún hlaut Nóbelsverð-
launin í bókmenntum árið 1991.
Ólöf Eldjám þýddi.
Verð: 2980 kr.
Mál og menning